Hagvangur

Sjóðstjóri - Lífeyrissjóður verzlunarmanna

Hagvangur  •  Onsite  •  8 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

LV leitar að öflugum og reyndum sjóðstjóra í eignastýringu sjóðsins. Viðkomandi verður hluti af þriggja manna teymi sem hefur umsjón með innlendum skráðum hluta- og skuldabréfum. Sjóðstjórinn mun jafnframt hafa umsjón með erlendum skráðum hlutabréfum sjóðsins sem eru að stærstum hluta í sérgreindum söfnum. Sá hluti starfsins snýr einkum að eftirliti, greiningu á samsetningu, áhættu og árangri eignasafna auk samskipta við erlenda eignastýrendur.

Um er að ræða krefjandi starf fyrir einstakling með víðtæka reynslu af fjármálamörkuðum, sterka greiningarhæfni og áhuga á að taka virkan þátt í faglegri teymisvinnu við stýringu og greiningu skráðra verðbréfa.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Virk þátttaka í fjárfestingarákvörðunum vegna innlendra skráðra hluta- og skuldabréfa, ásamt sjóðstjórum eignaflokkanna
  • Sjóðstjóri erlendra skráðra hlutabréfa, einkum eftirlit með sérgreindum söfnum
  • Greining á innlendum fjármálamarkaði, atvinnugreinum, útgefendum og markaðsaðstæðum
  • Mat á fjárfestingarkostum, áhættu og væntri ávöxtun skráðra verðbréfa
  • Þátttaka í mótun fjárfestingaráherslna og undirbúningi fjárfestingarákvarðana
  • Samskipti við innlenda og erlenda eignastýrendur, miðlanir og aðra markaðsaðila
  • Greining og vöktun á ávöxtun, áhættu og samsetningu eignasafna
  • Þátttaka í innleiðingu sjálfbærnistefnu sjóðsins í skráðum verðbréfum, þ.m.t. stuðningur við reglubundna upplýsingagjöf

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Að lágmarki 10 ára reynsla af fjármálamörkuðum er æskileg, s.s. eignastýringu eða sambærilegum störfum
  • Góð samskiptahæfni og fagleg framkoma
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði fjármála, hagfræði, verkfræði eða viðskiptafræði
  • Verðbréfaréttindi eru skilyrði og CFA réttindi eru kostur
  • Víðtæk reynsla af greiningu og/eða stýringu skráðra verðbréfa
  • Framúrskarandi greiningarhæfni og geta til að setja flókin gögn í skýrt samhengi
  • Sjálfstæði, frumkvæði og öguð vinnubrögð
  • Rík hæfni til að vinna í faglegu og krefjandi teymi
  • Góð þekking á innlendum fjármálamarkaði
  • Reynsla af samskiptum við erlenda eignastýrendur og þekking á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum er kostur
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti

LV er leiðandi lífeyrissjóður sem vinnur í þágu 189 þúsund sjóðfélaga. Eignasafns sjóðsins nemur rúmlega 1.500 mö.kr. og skiptist til helminga í innlendar og erlendar eignir.

Hjá sjóðnum starfar 66 manna samhent liðsheild þar sem áhersla er lögð á fagleg vinnubrögð, þverfaglegt samstarf, góð samskipti, frumkvæði og hæfni til að laga sig að síbreytilegu umhverfi.

LV býður upp á góða starfsaðstöðu og heilbrigt og öruggt starfsumhverfi þar sem áhersla er meðal annars á jafnræði í stjórnunarstörfum, tækifæri til starfsþróunar og jafnvægi milli vinnu og einkalífs. LV er jafnlaunavottaður vinnustaður, hefur sett sér stefnu um sjálfbærni í rekstri sjóðsins og vinnur markvisst að því að skapa umhverfi þar sem allir fá tækifæri til að blómstra.

Nánari upplýsingar

Sverrir Briem – sverrir@hagvangur.is

Hagvangur

About Hagvangur

Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem stofnað var árið 1971 og býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum.

Hagvangur þjónustar árlega hundruði viðskiptavina við allt sem snýr að ráðningum og mannauðsráðgjöf. Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi og höfum við áralanga þekkingu og reynslu af atvinnulífinu. Það ásamt breiðu tengslaneti og góðu orðspori eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1971
Social Media