Garðabær

Sjálandsskóli - umsjónarkennari á miðstig

Garðabær  •  Garðabær, IS (Onsite)  •  17 days ago
Expired
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Sjálandsskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara á miðstig fyrir skólaárið 2026-2027.

Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk og er staðsettur í Garðabæ. Í skólanum eru u.þ.b. 300 nemendur og starfsmenn eru um 60. Í Sjálandsskóla ríkir góður starfsandi þar sem allir starfsmenn vinna saman að því að byggja upp fjölbreytt og skapandi skólastarf. Aðstaða nemenda og starfsfólks er til fyrirmyndar. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi í teymisvinnu og samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skipulag náms og kennslu nemenda á miðstigi
  • Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendum
  • Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsfólki
  • Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Teymisvinna
  • Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóla

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)*
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Faglegur metnaður
  • Áhugi á skólaþróun
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla af starfi í grunnskóla og/eða starfi með börnum er æskileg

*Fáist ekki starfsmaður með tilhlýðilega menntun kemur til greina að ráða annan hæfann starfsmann.

Hlunnindi:

  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.

Umsóknarfrestur er til og með 28. maí 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sesselja Þóra Gunnarsdóttir skólastjóri, sesseljag@sjalandsskoli.is og Ósk Auðunsdóttir aðstoðarskólastjóri, oska@sjalandsskoli.is.

Samkvæmt lögum verða umsækjendur sem eru ráðnir að skrifa undir heimild til upplýsingaöflurnar úr sakaskrá.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélags.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Garðabær

About Garðabær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown