Job Description
Sjálandsskóli auglýsir eftir kennara í smíði í 1.-10. bekk. Um er að ræða framtíðarstarf.
Sjálandsskóli er grunnskóli í Garðabæ fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Í Sjálandsskóla er lögð áhersla á skólastarf sem einkennist af vilja og virðingu með hag nemenda að leiðarljósi.
Leitað er eftir einstaklingi með mikinn metnað sem er tilbúinn að starfa í teymisvinnu að sveigjanlegu skólastarfi samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Skipuleggur nám og kennslu í smíði í 1.-10. bekk.
- Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsmönnum
- Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Hafa lokið að lágmarki 90 námseiningum á einu námssviði aðalnámskrár grunnskóla og menntunarfræði grunnskóla
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
- Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi á skólaþróun
- Góð tölvukunnátta
- Reynsla af starfi í grunnskóla og/eða starfi með börnum/ungmennum er æskileg
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
Hlunnindi:
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Umsóknarfrestur er til og með 5. júní 2026 Um er að ræða 80-100% stöðu frá 1. ágúst 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sesselja Þóra Gunnarsdóttir skólastjóri, sesseljag@sjalandsskoli.is eða Ósk Auðunsdóttir aðstoðarskólastjóri, oska@sjalandsskoli.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Samkvæmt lögum verða umsækjendur sem eru ráðnir að skrifa undir heimild til upplýsingaöflurnar úr sakaskrá.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.