Sólvangur hjúkrunarheimili óskar eftir sjúkraliða í spennandi stöðu vaktstjóra.
Starfið býður upp á fjölbreytt og krefjandi verkefni, en það felur m.a. í sér stjórnun vakta og almenn störf sjúkraliða við hjúkrun íbúa.
Starfshlutfall og vaktafyrirkomulag er samkomulagsatriði.
Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir framúrskarandi samskiptahæfni, sjálfstæðum vinnubrögðum, frumkvæði og jákvæðu viðmóti.
Hreint sakavottorð og íslenskukunnátta C1 er skilyrði.
Við hvetjum öll áhugasöm að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Fjóla Bjarnadóttir, forstöðumaður í netfangið fjola@soltun.is
Gildin okkar eru umhyggja, velferð, vellíðan og sjálfræði.
-Því miður eru engar lausar stöður eins og stendur, við geymum umsóknir í 3 mánuði og verðum í sambandi ef starf losnar-
