Heilsuvernd Dvöl-Endurhæfing óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara til starfa. Um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða samkvæmt samkomulagi.
Á Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfingu eru rekin biðrými fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu. Þjónustan felur í sér að veita þeim skjólstæðingum sem dvelja hjá okkur þá umönnun, þjálfun og eftirlit sem þeir þurfa, á meðan þeir bíða eftir varanlegu búsetuúrræði.
Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.
Við leitum að einstaklingi til starfa í fjölmenningarstarfshóp okkar sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og er tilbúin að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Þjálfun og meðferð einstaklinga
- Skipulag hópþjálfunar
- Fræðsla til skjólstæðinga
- Vinna í þverfaglegu teymi
- Þátttaka í þróun verkefna og þjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Löggilt sjúkraþjálfarapróf og starfsleyfi landlæknis
- Jákvætt viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði í starfi og skipulögð vinnubrögð
- Hæfni til þess að vinna í þverfaglegu teymi
- Framsækni og metnaður til að ná árangri í starfi
- Reynsla og/þekking á meðferð og greiningu stoðkerfissjúkraþjálfunar er kostur
- Reynsla af starfi með öldruðum er kostur
- Almenn tölvukunnátta.
- Góð íslenskukunnátta, bæði talað og skrifað mál
Umsóknarfrestur er til og með 16. ágúst 2026.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf ásamt starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað. Ráðið er í starfið óháð kyni. Nánari upplýsingar veitir Aníta Magnúsdóttir, forstöðumaður, anitam@hv.is, Steinunn Ósk Geirsdóttir deildarstjóri, steinunnosk@hv.is eða Anna María Friðriksdóttir deildarstjóri, annamaria@hv.is
Heilsuvernd samstæðan er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Markmið okkar er að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan. Því hver dagur er dýrmætur

Heilsuvernd is the largest preventive health care company in Iceland celebrating 25 years of business in the sectors of occupational health and safety, general practice, absence management and corporate medicine. We also run the largest online health information website in Iceland called www.doktor.is