The City of Reykjavik

ÍSAT kennari í tungumálaveri við Seljaskóla

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  8 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Seljaskóli við Kleifarsel er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk í efri hluta Seljahverfis. Þar sækja rúmlega 650 nemendur skóla og við hann starfa um 100 starfsmenn. Starfið byggir á grunngildum skólans, samvinnu- ábyrgð- trausti – og tillitssemi og er skólastarf sem stuðlar að vellíðan nemenda og starfsmanna (SÁTT). Sérstök áhersla er lögð á félagsfærni og sjálfseflingu í anda Menntastefnu Reykjavíkurborgar, Látum draumana rætast.

Allt starf Seljaskóla byggir á teymisvinnu og vinnur kennarateymi saman að kennslu árgangs, þróun skólastarfs og samvinnu við foreldra.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast skipulag og kennslu nemenda með íslensku sem annað mál í tungumálaveri í samráði við deildarstjóra.
  • Halda utan um skipulag tungumálavers.
  • Hafa yfirumsjón með móttökuviðtölum.
  • Stuðningur við nemendur í daglegu starfi og hlúa að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.
  • Skipulagning og aðlögun náms nemenda með mismunandi menningar- og tungumálabakgrunn.
  • Þjálfun í félagsfærni og sjálfstæðra vinnubragða nemenda.
  • Ráðgjöf við kennara og foreldra um nám og kennslu.
  • Samráð og samstarf við aðra ÍSAT kennara í Breiðholti.
  • Vinnur að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Annast fyrirlagnir skimana.

Hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Framhaldsmenntun í kennslu íslensku sem annars tungumáls er æskileg.
  • Reynsla af kennslu nemenda með mismunandi menningar- og tungumálabakgrunn er æskileg.
  • Þekking og áhugi á kennslu- og uppeldisfræði.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Góð kunnátta í íslensku skilyrði, hvort sem er talað mál eða ritað, a.m.k. C1 samkvæmt Samevrópska matsrammanum
  • Faglegur metnaður og sveigjanleiki í starfi.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar um starfið

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambandi Íslands vegna Félags grunnskólakennara.

Starfshlutfall 100%

Umsóknarfrestur 5. júní 2026

Ráðningarform Ótímabundin ráðning.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhanna Héðinsdóttir skólastjóri í síma 411-7500 eða með því að senda fyrirspurn á johanna.hedinsdottir@reykjavik.is

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media