Veitur

Samskiptastjóri Veitna

Veitur  •  Onsite  •  5 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Veitur leita að samskiptastjóra sem leiðir stefnumótun og áherslur félagsins í samskiptamálum. Hlutverkið felst í að tryggja að samskipti styðji við stefnu, ákvarðanir og markmið Veitna og styrki traust og skilning almennings, viðskiptavina, sveitarfélaga og stjórnvalda á verkefnum fyrirtækisins.

Veitur eru á einu umfangsmesta uppbyggingarskeiði í sögu félagsins. Við rekum ómissandi innviði og fjárfestum fyrir 20–25 milljarða króna á ári í hitaveitu, vatnsveitu, rafveitu og fráveitu. Verkefni okkar snerta daglegt líf um 70% landsmanna og kalla oft á samtal um flókin og stundum umdeild mál.

Starfið heyrir beint undir framkvæmdastýru og samskiptastjóri situr framkvæmdastjórnarfundi. Samskiptastjóri starfar með upplýsingafulltrúa Veitna, sem sinnir daglegri upplýsingamiðlun og í samstarfi við samskiptateymi Orkuveitunnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móta og leiða samskiptastefnu Veitna.
  • Tryggja markviss og samræmd innri og ytri samskipti Veitna.
  • Vera framkvæmdastýru og framkvæmdastjórn ráðgefandi í stefnumótun, upplýsingagjöf og samskiptum.
  • Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við sveitarfélög, stjórnvöld og aðra hagaðila.
  • Leiða fjölmiðlasamskipti og samskipti við hagaðila vegna viðkvæmra eða umdeildra mála.
  • Tryggja að samskipti Veitna styðji við stefnu, orðspor og traust fyrirtækisins til lengri tíma.

Hæfni og reynsla

  • Umfangsmikil reynsla af stefnumótandi samskiptum og ráðgjöf við stjórnendur.
  • Reynsla af samskiptum við stjórnvöld og/eða sveitarfélög er mikill kostur.
  • Reynsla af samskiptum og umræðu um umdeild mál.
  • Góð þekking á fjölmiðlum og samfélagsumræðu.
  • Hæfni til að gera flókin mál skýr og aðgengileg.
  • Framúrskarandi færni í íslensku, bæði í ræðu og riti.
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

Hvers vegna Veitur?

Veitur tengja samfélagið við rafmagn, hita, hreint vatn og fráveitu. Við veitum lífsgæði til framtíðar með nýsköpun, samstarfi og öruggum rekstri. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og þjónusta um 70% landsmanna. Við setjum viðskiptavininn í forgrunn, leitum stöðugt leiða til að bæta þjónustuna og vinnum að því að skapa trausta innviði til framtíðar.

Við bjóðum fjölbreytt og stuðningsríkt vinnuumhverfi þar sem framsýni, hagsýni, heiðarleiki og frumkvæði skipta máli. Við trúum að fjölbreytileiki skili betri árangri og hvetjum öll sem uppfylla grunnskilyrði til að sækja um.

Kynntu þér vinnustaðinn á www.veitur.is/vinnustadurinn.

Umsóknarfrestur er til og með 12. október 2026. Nánari upplýsingar veitir Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna, á netfanginu solrun.kristjansdottir@veitur.is.

Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og verður listi yfir umsækjendur ekki birtur.

Veitur

About Veitur

Veitur Utilities is the biggest utility company in Iceland; we provide important services for the public benefit and ensure that users have continued access to hot water supplies, electricity, water and wastewater systems.

More info here:

In Icelandic: https://www.veitur.is/storfin

In English: https://www.veitur.is/en/storfin

Copy and paste this link to apply for a job: https://starf.or.is/veitur/

Industry
Energy & Utilities
Company Size
51-200 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
2014
Website
veitur.is
Social Media