Vilt þú hafa áhrif á hvernig samningar tryggja skilvirkan rekstur og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini Veitna?
Veitur leita að framsýnum og lausnarmiðuðum einstaklingi sem hefur auga fyrir smáatriðum og hefur hæfileika til þess að skapa skýra og skilvirka umgjörð utan um rekstrar- og fjárfestingarverkefni með góðum samningum. Við leitum að aðila með reynslu af því að tryggja að samningar skili raunverulegum og mælanlegum árangri.
Viðkomandi bætist við samningastjórateymi sem fyrir er og tekur þátt í áframhaldandi þróun þess.
Um starfið
Sem samningastýra/stjóri hjá Veitum berð þú ábyrgð á mótun og eftirfylgni samninga. Þú tryggir að samningar séu skýrir, mælanlegir og reknir í samræmi við skilmála, með áherslu á hagkvæmni, gæði og þjónustu. Þú vinnur náið með rekstrarfólki, verkefnastjórum og innkaupum og gegnir lykilhlutverki í samskiptum og eftirfylgni gagnvart verktökum þegar upp kemur ágreiningur.
Starfið krefst góðrar reynslu af framkvæmdasamningum og hæfni til að styðja rekstrarfólk og verkefnastjóra þegar upp koma áskoranir eða óvissa tengd framkvæmd samninga, kröfum og túlkun verklýsinga.
Helstu verkefni
Hæfni
Við leitum að aðila með reynslu af samningagerð, rekstri samninga og samningastjórnun, helst á sviði verktakasamninga. Mikilvægt er að hafa sterka greiningarhæfni og reynslu af því að setja fram mælanleg markmið og fylgja þeim eftir, ásamt getu til að vinna markvisst með gögn til að mæla og bæta árangur.
Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á gæðastjórnun og frammistöðumati og hafi þróað færni í samningatækni og samskiptum í krefjandi aðstæðum. Starfið krefst jafnframt agaðra, skipulagðra og sjálfstæðra vinnubragða og hæfni til að knýja fram breytingar.
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði verk-, eða tæknifræði, er nauðsynleg.
Hvers vegna Veitur
Veitur eru framsækið þjónustufyrirtæki sem tryggir viðskiptavinum aðgengi að rafmagni, hitaveitu, vatni og fráveitu. Við setjum viðskiptavininn í fyrsta sæti og erum stöðugt að bæta okkur og finna leiðir til þess að þjónusta viðskiptavini okkar enn betur. Hjá okkur færð þú tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif og taka þátt í stöðugri þróun á lifandi vinnustað.
Við bjóðum upp á fjölbreytt og stuðningsríkt vinnuumhverfi þar sem áhersla er lögð á framsýni, hagsýni, heiðarleika og frumkvæði. Rannsóknir hafa sýnt að fjölbreytileiki leiðir til betri árangurs og við hvetjum öll sem uppfylla grundvallarskilyrði starfsins til að sækja um, óháð því hvort þú hakir í öll boxin.
Umsóknarfrestur er til og með 20. júní 2026
Nánari upplýsingar veitir Pétur Krogh Ólafsson, forstöðumaður Sjálfbærni og öryggi innviða, Petur.Krogh.Olafsson@veitur.is

Veitur Utilities is the biggest utility company in Iceland; we provide important services for the public benefit and ensure that users have continued access to hot water supplies, electricity, water and wastewater systems.
More info here:
In Icelandic: https://www.veitur.is/storfin
In English: https://www.veitur.is/en/storfin
Copy and paste this link to apply for a job: https://starf.or.is/veitur/