The City of Reykjavik

Þroskaþjálfi/leikskólasérkennari/leikskólakennari

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  1 day ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Í leikskólanum Funaborg trúum við að barnið sé hæfur einstaklingur sem getur, skilur, kann og vill. Í félagslegri tengingu við jafningja sína, kennara, foreldra, nærumhverfi sitt og stærra samfélagið verði barnið sterkara, hafi trú á eigin getu og öðlist kjark og þor til að leysa úr eigin vandamálum og flóknum samskiptamynstrum.

Leikskólinn Funaborg er þriggja deilda leikskóli, en á, á næstu árum að verða sjö deilda leikskóli. Leikskólinn stendur við Gullinbrú í miklum, fallegum og ævintýralegum skógarlundi.

Við vinnum nú að þróunarverkefni sem hefur yfirheitið Bernskulæsi/gríptu tækifærið

Í verkefninu „Gríptu tækifærið“ er unnið með bernskulæsi og markvisst unnið að því að skapa jákvætt viðhorf til lesturs. Ferlið leggur grunn að börn þrói með sér færni til að skilja umhverfið, miðla þekkingu, reynslu eða upplifun til annarra. Verkfæri sem nýtt eru í verkefnið eru sjónrænar vísbendingar, söngstundir, yndislestur, Lubbi finnur málbein, Gefðu 10 og markviss málörvun í litlum hópum. Markmið verkefnisins er að dýpka málumhverfi barnanna, auka ígrundun í starfi og efla sameiginlega ábyrgð starfsfólks.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu, þ.m.t:

  • Að bera ábyrgð á sérkennslu sem fram fer á deildinni í samvinnu við deildarstjóra og sérkennslustjóra
  • Skipulagning og mat á sérkennslu barnsins
  • Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir einstaklingsnámskrá
  • Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu
  • Að taka þátt í teymisvinnu barnsins

Menntunar- og hæfniskröfur

Fríðindi í starfi

  • 36 stunda vinnuvika
  • Heilsustyrkur
  • Sundkort
  • Menningarkort
  • Samgöngustyrkur

Heimasvæði Funaborgar

https://reykjavik.is/funaborg

Myndband um Funaborg

https://vimeo.com/380462481

Starfsaðferðir í Funaborg

https://menntastefna.is/tool/myndbond-um-sjalfseflingu-fyrir-starfsfolk-leikskolanna/

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall 100%

Nánari upplýsingar um starfið veitir Agnes Jónsdóttir í síma 411-3920 og í tölvupósti Agnes.Jonsdottir01@reykjavik.is

Leikskólinn Funaborg, Funafold 42, 112 Reykjavík

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media