Þroskaþjálfi eða starfsmaður með aðra uppeldisfræðimenntun, 50-100% starf
Ungbarnaleikskóli Seltjarnarness er leikskóli fyrir yngstu nemendur Seltjarnarnesbæjar á leikskólaaldri. Skólinn er sjálfstæð fag- og rekstrareining á vegum Seltjarnarnesbæjar og er til húsa í Gamla Mýrarhúsaskóla. Í skólanum er ein deild og er henni ætlað að þjóna sérstöðu yngstu leikskólabarnanna út frá kröfum til fagmennsku og starfshátta fyrir aldurshópinn, samtvinnað umhyggju og námi. Núna er verið að bæta við annarri leikskóladeild og því leitar leikskólinn að góðum starfsmönnum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Fríðindi í starfi:
Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru öll kyn hvött til að sækja um.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélög.
Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar.
Umsóknarfrestur er til og með 8. júní 2026.
Ungbarnaleikskóli Seltjarnarness er sjálfstæð fag- og rekstrareining á vegum Seltjarnarnesbæjar og er staðsettur í Gamla Mýrarhúsaskóla við Nesveg. Í leikskólanum er ein deild og 16 nemendur á öðru aldursári til tveggja ára.
Í ungbarnaleikskólanum er lögð áhersla á máltöku og málrækt ungbarna, hreyfingu og útivist. Leikskólinn á í samstarfi við Bókasafn Seltjarnarnes og íþróttafélagið Gróttu.
Í leikskólanum er lögð áhersla á vellíðan samanber að þar er lítil líkamsrækt og slökunaraðstaða fyrir starfsfólk.
Upplýsingar um starfið veita:
Upplýsingar um störf í Ungbarnaleikskóla Seltjarnarness veitir Selma Birna Úlfarsdóttir leikskólastjóri ungbarnaleikskóla, selma.b.ulfarsdottir@seltjarnarnes.is
