The City of Reykjavik

Þroskaþjálfi

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  5 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Frá og með 1. ágúst 2026 er laus er til umsóknar staða þroskaþjálfa í Austurbæjarskóla. Austurbæjarskóli er rótgróinn skóli í miðbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru um 400 nemendur í 1.-10. bekk og um 70 starfsmenn.

Í Austurbæjarskóla er lögð áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, samvinnu auk þess sem list- og verkgreinar skipa stóran sess í skólastarfinu. Lögð er áhersla á vinsamleg samskipti og vellíðan nemenda og starfsmanna. Í skólanum er öflugt foreldrafélag og er samvinna við foreldra og nærsamfélag gott.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast þjálfun/stuðning við nemendur í samráði við skólastjórnendur og samstarfskennara.
  • Vinna með félagsfærni og aðlaga námsefni og námsaðstæður.
  • Vinna að gerð sjónræns skipulags fyrir nemendur
  • Vinna að gerð einstaklingsnámskráa í samstarfi við kennara og deildarstjóra.
  • Vinna í teymi með öðrum kennurum.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi sem slíkur
  • Þekking á skipulagðri kennslu (TEACCH)
  • Kunnátta, hæfni og reynsla af starfi með börnum með fjölbreyttar þarfir mikilvæg.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Mjög góð íslenskukunnátta skilyrði.

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristin.Johannesdottir@reykjavik.is eða í síma 411-7200.

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media