Sæmundarskóli óskar eftir þroskaþjálfa. Einkunnarorð Sæmundarskóla eru gleði, virðing, samvinna. Þau gefa tóninn fyrir skólabraginn og eru leiðarljós í starfinu.
Verkefni og ábyrgð
Hefur umsjón með skipulagningu og framkvæmd á sérhæfðri þjálfun nemenda ásamt því að veita samstarfsmönnum og foreldrum fræðslu og ráðgjöf.
Annast þjálfun nemenda í samráði við deildarstjóra stoðþjónustu, sérkennara, aðra kennara og foreldra.
Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Hæfniskröfur
Þroskaþjálfamenntun og leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi.
Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
Faglegur metnaður.
Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
Íslenskukunnátta B2 samkvæmt samevrópskum matskvarða um tungumálaviðmið.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar við Þroskaþjálfafélag Íslands.
Starfshlutfall er 50-100% eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir G. Eygló Friðriksdóttir skólastjóri gudjona.eyglo.fridriksdottir@reykjavik.is og Matthildur Hannesdóttir aðstoðarskólastjóri matthildur.hannesdottir@reykjavik.is og í síma 4117848

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.