The City of Reykjavik

Þroskaþjálfi

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  13 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Laus staða þroskaþjálfa fyrir næsta skólaár. Selásskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. - 7. bekk.

Í skólanum eru um 180 nemendur og um 40 starfsmenn.

Kjörorð skólans er: Látum þúsund blóm blómstra og gildisáherslur hans eru: Virðing – gleði - vinátta.

Skólinn leggur áherslu á lestur/læsi og upplýsingatækni. Ennfremur umhverfismennt með það að markmiði að nemendur skilji, þekki og virði umhverfi sitt og náttúru. Selásskóli er teymiskennsluskóli.

Umsókn fylgi ferilskrá, menntunargögn og annað er málið varðar. Frekari upplýsingar um skólann má nálgast á heimasíðu hans www.selasskoli.is

Í skólanum er öflugt foreldrafélag og er samvinna við foreldra og nærsamfélag gott.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast þjálfun/stuðning við nemendur í samráði við skólastjórnendur og samstarfsfólk.
  • Vinna með félagsfærni og aðlaga námsefni og námsaðstæður.
  • Vinna að gerð sjónræns skipulags fyrir nemendur
  • Vinna að gerð einstaklingsnámskráa í samstarfi við kennara og verkefnastjóra.
  • Vinna í teymi með öðru starfsfólki.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.
  • Tekur þátt í kennara- og starfsmannafundum
  • Annast ráðgjöf, upplýsingagjöf og upplýsingaöflun vegna sérþarfa nemenda sinna til foreldra og annarra hlutaðeigandi
  • Vinnur önnur þau verkefni sem skólastjóri felur honum og eðlilegt getur talist að rúmist innan verksviðs hans

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi sem slíkur
  • Þekking á skipulagðri kennslu (TEACCH)
  • Kunnátta, hæfni og reynsla af starfi með börnum með fjölbreyttar þarfir mikilvæg.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Mjög góð íslenskukunnátta skilyrði.
  • Framúrskarandi íslenskukunnátta í ræðu og riti
  • Hreint sakarvottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt kjarasamning Samband íslenskra sveitarfélaga og kjarasamning Þroskaþjálfafélags Íslands.

Um er að ræða 75 - 80 % stöðu. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst n.k.

Umsóknarfrestur 28. maí 2026

Ráðningarform tímabundin ráðning

Nánari upplýsingar um starfið veitir Rósa Harðardóttir skólastjóri í síma 4116680 og tölvupósti rosa.hardardottir@reykjavik.is

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media