
Langar þig að vinna í öflugum hópi og með mörgum af helstu fyrirtækjum landsins
Vegna aukinna verkefna leitum við að kraftmikilli, úrræðagóðri og metnaðarfullri manneskju í starf ráðgjafa viðskiptakerfa. Við bjóðum uppá spennandi og gott vinnuumhverfi með fjölbreyttum verkefnum og tækifærum.
Starfssvið
Viðkomandi mun taka þátt í fjölbreyttum verkefnum sem snúa að innleiðingu, ráðgjöf og rekstri á Dynamics 365 Finance & Operations.
Helstu verkefni
Viðskiptalausnir
Innan Viðskiptalausna starfa yfir 140 sérfræðingar við verkefni tengd viðskiptakerfum og stafrænni umbreytingu íslenskra fyrirtækja. Við veitum framúrskarandi þjónustu sem er byggð á djúpri þekkingu á viðskiptakerfum og ferlum. Ráðgjafinn heyrir undir deildarstjóra ráðgjafar og þjónustu hjá Dynamics 365 F&O.
Starfið gæti hentað þér ef þú:
Vinnustaðurinn Advania
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.
Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.
Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni
Ferli ráðninga
Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Einar Óli Kristófersson, deildarstjóri Ráðgjafar og þjónustu F&O, einar.oli.kristofersson@advania.is / 4409000

Markmið okkar er að stuðla að jákvæðum áhrifum á samfélagið með snjallri notkun upplýsingartækninnar.