Advania Ísland

Ráðgjafi í netöryggi

Advania Ísland  •  Onsite  •  1 day ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Viltu hafa áhrif á netöryggi hjá fjölbreyttum hópi viðskiptavina?

Advania leitar að reyndum sérfræðingi í netöryggi í leiðandi ráðgjafarhlutverk þar sem þú styður bæði viðskiptavini og innri teymi með sérfræðiþekkingu á netöryggi og öruggum upplýsingakerfum.

Þú vinnur náið með stefnumótandi teymi Advania í netöryggismálum og átt í nánu samtali við aðra sérfræðinga, öryggis- og tæknistjóra viðskiptavina. Þú tekur þátt í að móta þjónustuframboð

Advania og veitir ráðgjöf sem hefur raunveruleg áhrif á netöryggi hjá fjölbreyttum hópi viðskiptavina. Starfið krefst djúprar tækniþekkingar og hæfni til að miðla flóknum málum á skýran og ráðgefandi hátt.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiðandi ráðgjöf og eftirfylgni gagnvart viðskiptavinum.
  • Ráðgjöf til innri tekjusviða Advania um öryggi og viðnámsþol upplýsingakerfa.
  • Ráðgefandi þjónusta í öryggisvitund og notendafræðslu.
  • Umsjón og ráðgjöf varðandi veikleikastjórnun.
  • Aðstoð við viðskiptavini við að uppfylla tæknilegar þarfir og kröfur.
  • Þátttaka í stefnumótun um örugga notkun gervigreindar.
  • Náið samstarf við deild netöryggis og gagnaþróunar á skrifstofu stefnumótunar.
  • Náið samstarf við vörustjóra öryggislausna, sölu og sérfræðinga í rekstrarteymum.
  • Þátttaka í sýndarteymi sérfræðinga á sviði upplýsingatækniöryggis innan Advania.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólagráða eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi.
  • Mikil reynsla af netöryggismálum.
  • Þekking á NIST aðferðafræðinni í netöryggi er æskileg.
  • Þekking á regluverkum eins og NIS/NIS2, CRA, DORA, AI Act er kostur.
  • Þekking á breiðu vöruframboði ólíkra netöryggisvarna.
  • Þekking á hönnun og rekstri öruggra tölvukerfa.
  • Góð enskukunnátta.
  • Framúrskarandi þjónustulund og hæfni í samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Vinnustaðurinn Advania

Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.

Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.

Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni

Ferli ráðninga

  1. Tekið á móti umsóknum til 12. júní 2026
  2. Yfirferð umsókna
  3. Boðað í fyrstu viðtöl
  4. Boðað í seinni viðtöl
  5. Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
  6. Öflun umsagna / meðmæla
  7. Ákvörðun um ráðningu
  8. Öllum umsóknum svarað

Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Ævar Svan Sigurðsson, forstöðumaður Professional Services, aevar.sigurdsson@advania.is / 4409000

Advania Ísland

About Advania Ísland

Markmið okkar er að stuðla að jákvæðum áhrifum á samfélagið með snjallri notkun upplýsingartækninnar.

Industry
IT & Software
Company Size
501-1,000 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1939
Social Media