Deloitte

Ráðgjafi með áherslu á kaup- og söluferli fyrirtækja

Deloitte  •  Kópavogur, IS (Onsite)  •  18 days ago
Expired
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Fjármálaráðgjöf Deloitte leitar að metnaðarfullum liðsmanni sem hefur brennandi áhuga á fjármálum sem langar að vaxa sem ráðgjafi í sterku teymi. Við vinnum með viðskiptavinum að fjölbreyttum verkefnum og veitum virðisaukandi þjónustu í hæsta gæðaflokki.

Helstu verkefni:

Þú munt veita viðskiptavinum stefnumarkandi ráðgjöf og styður við ákvörðunartöku í umbreytingarverkefnum, sérstaklega við kaup eða sölu fyrirtækja. Þú munt bera ábyrgð á samskiptum við viðskiptavini, verkefnastýringu, greiningarvinnu, skýrsluskrifum og framsetningu niðurstaðna. Þú kemur einnig að öðrum verkefnum á sviðinu.

Starfið hentar einstaklingi sem hefur góð tengsl og þekkingu á íslensku atvinnulífi. Að sama skapi skiptir máli að hafa færni til að leiða verkefni og teymi í hröðu umhverfi í samstarfi við reynda ráðgjafa og stjórnendur Deloitte.

Qualifications

Bakgrunnur, reynsla og færni

  • Meistaragráða á sviði viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði, fjármála eða skyldra greina
  • Reynsla af fyrirtækjaráðgjöf, fjárfestingarbankastarfsemi eða sambærilegum störfum
  • Góð leiðtoga- og verkefnastjórnunarreynsla
  • Framúrskarandi greiningarhæfni og skynbragð á samhengi flókinna viðskipta
  • Færni í samskiptum og geta til að setja fram flókið efni á skýran hátt
  • Mjög góð kunnátta í Excel og PowerPoint
  • Nákvæmni og metnaður til að skila af þér góðu verki
  • Forvitni, frumkvæði og lausnamiðað hugarfar
  • Geta unnið sjálfstætt og tekið ábyrgð á krefjandi verkefnum
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
  • Metnaður til að þróast í alþjóðlegu ráðgjafarumhverfi

Additional Information

Starfsþróun þín

  • Við upphaf starfs færðu leiðbeinanda sem kemur þér inn í starfið („buddy-kerfi“) 
  • Þú færð þjálfun og stuðning frá reyndum sérfræðingum í teyminu þínu 
  • Þú verður með reyndan coach sem aðstoðar þig við að þróa þig áfram í starfi 
  • Þú lærir mikið af þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá  viðskiptavinum í ólíkum geirum 
  • Við styðjum við vöxt þinn með símenntunartækifærum 

Að auki bjóðum við upp á:

  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat 
  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf 
  • Styrki til foreldra 
  • Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks í nýjum höfuðstöðvum á Dalvegi 
  • Launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum 
  • Starfsfólk ræktar fjölbreytt áhugamál saman þvert á félagið t.d. með hlaupahóp, fótbolta í hádeginu og að nýta leikjaherbergi til skemmtunar og samveru

Við hlökkum til að fá umsóknina þína 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Björgvin Ingi Ólafsson (bio@deloitte.is). Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf í lok sumars 2026. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte,  www.deloitte.is, til og með 25. maí nk. 

Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.

Deloitte

About Deloitte

Deloitte drives progress. Our firms around the world help clients become leaders wherever they choose to compete. Deloitte invests in outstanding people of diverse talents and backgrounds and empowers them to achieve more than they could elsewhere. Our work combines advice with action and integrity. We believe that when our clients and society are stronger, so are we.

Deloitte refers to one or more of Deloitte Touche Tohmatsu Limited (“DTTL”), its global network of member firms, and their related entities. DTTL (also referred to as “Deloitte Global”) and each of its member firms are legally separate and independent entities. DTTL does not provide services to clients. Please see www.deloitte.com/about to learn more.

The content on this page contains general information only, and none of Deloitte Touche Tohmatsu Limited, its member firms, or their related entities (collectively the “Deloitte Network”) is, by means of this publication, rendering professional advice or services. Before making any decision or taking any action that may affect your finances or your business, you should consult a qualified professional adviser. No entity in the Deloitte Network shall be responsible for any loss whatsoever sustained by any person who relies on content from this page.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
10,000+ employees
Headquarters
Worldwide, OO
Year Founded
1845
Social Media