Deloitte

Ráðgjafi með áherslu á fjárhagslegar áreiðanleikakannanir

Deloitte  •  Kópavogur, IS (Onsite)  •  18 days ago
Expired
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Fjármálaráðgjöf Deloitte leitar að metnaðarfullum liðsmanni sem hefur brennandi áhuga á fjármálum sem langar að vaxa sem ráðgjafi í sterku teymi. Við vinnum með viðskiptavinum að fjölbreyttum verkefnum og veitum virðisaukandi þjónustu í hæsta gæðaflokki.

Helstu verkefni:

Við veitum fyrirtækjum, fjárfestingarsjóðum og fjármögnunaraðilum þjónustu og ráðgjöf í tengslum við kaup, sölu og sameiningar fyrirtækja. Í grundvallaratriðum er tilgangur áreiðanleikakönnunar að samræma vitneskju og upplýsingar kaupanda og seljanda félags. Með ítarlegum fjárhagslegum greiningum stuðlar áreiðanleikakönnun að því að takmarka óvissu þannig að hægt sé að fækka verulega fyrirvörum og ábyrgðum í kaupsamningi um viðskiptin.

Verkefnastjóri ber ábyrgð á daglegri stjórnun einstakra verkefna undir handleiðslu reyndra ráðgjafa. Verkefnastjóri sinnir meðal annars greiningarvinnu og skýrsluskrifum, samskiptum við viðskiptavini og þjálfun reynsluminni ráðgjafa.

Qualifications

Bakgrunnur, reynsla og færni

  • Meistaragráða á sviði viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði, reikningshalds, fjármála eða skyldra greina
  • Góð starfsreynsla í fjármálum, reikningshaldi og/eða endurskoðun
  • Greiningarhæfni og hæfni til að setja fram efni á skýran og skilmerkilegan hátt
  • Góð þekking á Microsoft Excel og PowerPoint
  • Nákvæmni og metnaður til að skila af þér góðu verki
  • Forvitni, frumkvæði og lausnamiðað hugarfar
  • Geta unnið sjálfstætt en virka vel í teymi enda býrðu yfir samskiptafærni
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
  • Metnaður og áhugi til að læra og þróast í starfi í gegnum krefjandi verkefni á innlendum og alþjóðlegum vettvangi

Additional Information

Starfsþróun þín

  • Við upphaf starfs færðu leiðbeinanda sem kemur þér inn í starfið („buddy-kerfi“)
  • Þú færð þjálfun og stuðning frá reyndum sérfræðingum í teyminu þínu
  • Þú verður með reyndan coach sem aðstoðar þig við að þróa þig áfram í starfi
  • Þú lærir af fjölbreyttum verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í
  • ólíkum geirum
  • Við styðjum við vöxt þinn með símenntunartækifærum

Að auki bjóðum við upp á:

  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat
  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
  • Styrki til foreldra
  • Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks í nýjum höfuðstöðvum á Dalvegi
  • Launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
  • Starfsfólk ræktar fjölbreytt áhugamál saman þvert á félagið t.d. með hlaupahóp, fótbolta í hádeginu og að nýta leikjaherbergi til skemmtunar og samveru

Við hlökkum til að fá umsóknina þína

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Grétarsdóttir (hgretarsdottir@deloitte.is). Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf í lok sumars 2026. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, www.deloitte.is , til og með 25. maí nk.

Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.

Deloitte

About Deloitte

Deloitte drives progress. Our firms around the world help clients become leaders wherever they choose to compete. Deloitte invests in outstanding people of diverse talents and backgrounds and empowers them to achieve more than they could elsewhere. Our work combines advice with action and integrity. We believe that when our clients and society are stronger, so are we.

Deloitte refers to one or more of Deloitte Touche Tohmatsu Limited (“DTTL”), its global network of member firms, and their related entities. DTTL (also referred to as “Deloitte Global”) and each of its member firms are legally separate and independent entities. DTTL does not provide services to clients. Please see www.deloitte.com/about to learn more.

The content on this page contains general information only, and none of Deloitte Touche Tohmatsu Limited, its member firms, or their related entities (collectively the “Deloitte Network”) is, by means of this publication, rendering professional advice or services. Before making any decision or taking any action that may affect your finances or your business, you should consult a qualified professional adviser. No entity in the Deloitte Network shall be responsible for any loss whatsoever sustained by any person who relies on content from this page.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
10,000+ employees
Headquarters
Worldwide, OO
Year Founded
1845
Social Media