Icelandia

Rekstrarstjóri ævintýraferða á Adventure Ground og í Skaftafelli

Icelandia  •  Onsite  •  19 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Icelandia leitar að öflugum, metnaðarfullum og árangursdrifnum rekstrarstjóra til að leiða starfsemi félagsins á Adventure Ground í Mýrdalssveit og í Skaftafelli. Um er að ræða umfangsmikinn og spennandi rekstur þar sem fagmennska, öryggi og framúrskarandi upplifun gesta eru í fyrirrúmi. Starfsemin á báðum stöðum er rekin undir vörumerkinu Icelandic Mountain Guides, einu af rótgrónustu og virtustu vörumerkjum landsins í ævintýra- og jöklaferðaþjónustu.

Á Adventure Ground er fjölbreytt afþreyingarstarfsemi, meðal annars fjórhjólaferðir, buggybílaferðir og rútuferðir á Sólheimasandi ásamt jöklagöngum og kayakferðum á Sólheimajökli. Í stórbrotinni náttúru Skaftafells er boðið upp á jöklagöngur og íshellaferðir.

Við leitum að einstaklingi með góðan rekstrarskilning og ríka leiðtogahæfni sem getur mótað öflug teymi og fengið fólk með sér í lið. Starfið felur í sér ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun, áætlanagerð og áframhaldandi þróun starfseminnar. Starfið hentar einstaklingi sem býr yfir lausnamiðaðri hugsun, sterkri skipulagshæfni og getu til að taka upplýstar ákvarðanir í hröðu og krefjandi rekstrarumhverfi.

Starfsstöð er á Ytri Sólheimum í Mýrdalssveit og er möguleiki á leigu á nýlegu og rúmgóðu einbýlishúsi með þremur svefnherbergjum samkvæmt nánara samkomulagi.

Hjá Icelandia færðu tækifæri til að leiða öflug teymi og hafa raunveruleg áhrif á upplifun þúsunda gesta sem heimsækja Ísland á hverju ári.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiðir daglegan rekstur og stjórnun Adventure Ground og Skaftafells, þ.m.t. verkaskiptingu, innkaup, viðhald, viðgerðir og framkvæmd ferða.
  • Ber ábyrgð á rekstrar-, mannafla- og kostnaðaráætlunum og eftirfylgni þeirra.
  • Tryggir að öryggiskröfur, verklag og gæðastaðlar séu virtir í allri starfseminni.
  • Skipuleggur mannafla og stuðlar að skilvirkri nýtingu starfsfólks í samræmi við umfang starfseminnar.
  • Ber ábyrgð á rekstrarárangri, kostnaðareftirliti og hámörkun afkomu og nýtingu auðlinda.
  • Leiðir og styður stjórnendur og starfsfólk og stuðlar að jákvæðri vinnustaðamenningu, góðu upplýsingaflæði og árangursríku samstarfi.
  • Vinnur markvisst að umbótum, þróun og bestun rekstrar, ferla og þjónustu.
  • Tekur virkan þátt í þróun núverandi og nýrra afþreyingarvara.
  • Fylgist með lykilmælikvörðum og grípur til aðgerða sem bæta árangur, gæði og skilvirkni.
  • Tryggir gott samstarf milli starfsstöðva og við aðrar deildir og stoðsvið fyrirtækisins.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. á sviði rekstrar, stjórnunar eða ferðaþjónustu.
  • Reynsla af rekstri, stjórnun starfsfólks og mannaflaáætlanagerð.
  • Góð rekstrarleg og fjárhagsleg hugsun og hæfni til áætlanagerðar og eftirfylgni.
  • Góð yfirsýn, skipulagshæfni og geta til að forgangsraða verkefnum og taka ákvarðanir í síbreytilegu og krefjandi rekstrarumhverfi.
  • Árangursdrifni og reynsla af árangursstjórnun og notkun lykilmælikvarða til að styðja ákvarðanatöku.
  • Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að nýta tækni, stafræn verkfæri og gervigreind til að efla og bæta rekstur.
  • Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni.
  • Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð.
  • Rík öryggis- og gæðisvitund.
  • Mjög góð enskukunnátta í ræðu og riti. Góð íslenskukunnátta er kostur.
  • Reynsla af ferðaþjónustu, afþreyingu eða sambærilegum rekstri er mikill kostur.

Fríðindi í starfi

  • Möguleiki á nýlegu húsnæði á staðnum samkvæmt nánara samkomulagi.
  • Krefjandi og fjölbreytt stjórnendahlutverk hjá leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki.
  • Tækifæri til að hafa áhrif á þróun, uppbyggingu og framtíð starfseminnar.
  • Sveigjanlegt vinnuumhverfi.
  • Líkamsræktarstyrkur og sálfræðistyrkur.
  • Tækifæri til starfsþróunar.

Hjá Icelandia verður þú hluti af skemmtilegu teymi sem leggur metnað í að sýna gestum sínum fegurð Íslands. Við bjóðum upp á líflegt vinnuumhverfi, tækifæri til vaxtar og möguleika á að hafa raunveruleg áhrif á upplifun viðskiptavina okkar.

Umsækjendur eru hvattir til að senda inn umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi sem varpar ljósi á reynslu þeirra, hæfni og áhuga á starfinu. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við starf@icelandia.is

Icelandia

About Icelandia

Your Entrance to the Wonders of Iceland

Industry
Unknown
Company Size
51-200 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
Unknown
Social Media