Blue Lagoon Iceland

Rekstrarstjóri - Þjórsárdalur

Blue Lagoon Iceland  •  Onsite  •  3 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Bláa Lónið leitar að öflugum og framsýnum leiðtoga til að taka þátt í að þróa og móta rekstur á nýjum áfangastað í stórbrotnu landslagi Þjórsárdals.

Þar munu náttúra, vellíðan og einstök upplifun mynda eina heild. Gestir fá tækifæri til að endurnærast, tengjast landinu og njóta þjónustu í hæsta gæðaflokki.

Áfangastaðurinn samanstendur af Fjallaböðum, hóteli, gestastofu, smáhýsum, tjaldsvæði og fjölbreyttri þjónustu fyrir innlenda og erlenda gesti. Við leggjum ríka áherslu á sjálfbærni, virðingu fyrir náttúru, sérstöðu og menningu svæðisins — og viljum að starfsemin skapi verðmæti fyrir samfélagið og svæðið til framtíðar.

Við leitum að leiðtoga sem hefur drifkraft og metnað til að byggja upp framúrskarandi starfsemi, skapa sterka menningu og leiða teymi á þessum einstaka stað.

HELSTU VERKEFNI

  • Leiða undirbúning reksturs fram að opnun.
  • Bera ábyrgð á rekstri, árangri og áframhaldandi þróun.
  • Byggja upp og leiða öflugt stjórnendateymi.
  • Tryggja framúrskarandi upplifun gesta og starfsfólks.
  • Stuðla að sjálfbærni, gæðum og öryggi starfseminnar

HÆFNISKRÖFUR

  • Reynsla af rekstri víðtækrar þjónustustarfsemi.
  • Sterk leiðtogafærni og reynsla af uppbyggingu og þróun teyma.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Reynsla af breytingastjórnun er kostur.
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta.

Ef þú vilt leiða rekstur nýs áfangastaðar þar sem náttúra, vellíðan og framúrskarandi þjónusta mynda eina heild, þá viljum við heyra frá þér.

Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar, sigrun.halldorsdottir@bluelagoon.is.

Umsóknarfrestur er til og með 23. ágúst.

BLÁA LÓNIÐ

Bláa Lónið hefur um áratugaskeið verið leiðandi afl í íslenskri upplifunar- og vellíðunarferðaþjónustu. Við trúum á kraft náttúrunnar, gildi mannlegra tengsla og mikilvægi þess að skapa umgjörð sem eykur vellíðan, vekur innblástur og byggir á virðingu fyrir umhverfi og samfélagi. Í Þjórsárdal viljum við sameina þetta allt og skapa tilkomumikinn áfangastað sem byggir á sérstöðu staðsetningarinnar, styrkir nærsamfélagið og nýtir einstaka möguleika svæðisins með ábyrgum hætti.

Blue Lagoon Iceland

About Blue Lagoon Iceland

Founded in 1992, Blue Lagoon Iceland has long been a sustainable destination due to the beneficial powers of its famed geothermal seawater.

Nestled in the heart of an 800-year-old lava field on the Reykjanes Peninsula, and conveniently located between Reykjavik and Iceland’s international airport, Blue Lagoon Iceland is a sustainability-first company encompassing hotels, restaurants, research & development, renowned skin care lines, and a place for wellbeing.

In 2012, the company’s iconic centerpiece – the waters of the Blue Lagoon – was named one of “25 Wonders of the World” by National Geographic, propelling the majestic, healing waters into the upper echelons of global travel destinations.

In 2018, the company continued its evolution with the opening of the Retreat at Blue Lagoon Iceland, the country’s first, five-star spa hotel. Included in Time Magazine’s list of “The World’s 100 Greatest Places,” the Retreat features a 62-suite, award-winning, luxury hotel; a subterranean spa featuring the signature Blue Lagoon Ritual and in-water massage; a mineral-rich, private lagoon; and two new restaurants, including Moss, a Michelin-recommended destination.

Industry
Unknown
Company Size
201-500 employees
Headquarters
Grindavik, IS
Year Founded
1992
Social Media