Árbæjarskóli óskar eftir að ráða metnaðarfullan kennara í kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku, ÍSAT.
Í skólanum er rekið íslenskuver. Þar eru verkefnin fjölbreytt og snúa að kennslu, skipulagningu og þróun náms í íslensku sem öðru máli, móttöku nemenda í skólann og samstarfi við önnur íslenskuver.
Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 700 talsins og er skólinn safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru 112 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar áhugasamt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntun, reynsla og hæfni:
Umsóknarfrestur er til og með 23. ágúst 2026.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Rannveig Þorvaldsdóttir deildarstjóri stoðþjónustu í síma 411-7700 eða tölvupósti rannveig.thorvaldsdottir@reykjavik.is eða Guðlaug Sturlaugsdóttir skólastjóri netfang gudlaug.sturlaugsdottir@reykjavik.is.

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.