Isavia

Rafvirki í sérhæft viðhald á Keflavíkurflugvelli

Isavia  •  Onsite  •  1 hour ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Hefur þú áhuga á að sinna viðhaldi tæknibúnaðar á Keflavíkurflugvelli?

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum rafvirkja til starfa við sérhæfð rafvirkjastörf (smá- og lágspennu). Viðkomandi mun sinna fyrirbyggjandi viðhaldi, bregðast við bilunum og skrá viðhaldssögu og notkun varahluta í viðeigandi kerfi.

Rafvirki í sérhæfðu viðhaldi styður við öruggan og skilvirkan rekstur flugvallarins. Bakvaktir geta orðið hluti af starfinu þegar viðkomandi hefur öðlast nauðsynlega reynslu og þekkingu í bilanagreiningum og viðgerðum.

Helstu verkefni:

  • Viðhald á fjölbreyttum rafbúnaði flugvallarins
  • Eftirlit með eignum og bilanagreiningar
  • Styðja við uppsetningu á sérhæfðum búnaði
  • Skráning viðhaldssögu og notkun á varahlutum

Hæfniskröfur:

  • Sveinspróf í rafiðngreinum eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Íslensku- og enskukunnátta skilyrði
  • Góð samskiptafærni og jákvæðni
  • Frumkvæði, þjónustulund og skipulögð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Metnaður og vandvirkni í starfi

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknafrestur er til og með 14.september 2026

Frekari upplýsingar um starfið veitir Samson Jóhannsson, hópstjóri sérhæft viðhald, samson.johannsson@isavia.is

Isavia

About Isavia

We connect the world through Iceland ✈️

Isavia has the important role of handling the operation and development of infrastructure that lays the foundation for Iceland’s air transport, connections with the outside world and flights between continents.

Keflavik Airport is the largest gateway into Iceland. It is one of the most important single infrastructures of the tourism industry and plays an important role in creating a good quality of life and prosperity in Iceland.

To meet that responsibility, we have a united team and strong employees, who work together and with others in a constructive way.

Industry
Aviation & Aerospace
Company Size
201-500 employees
Headquarters
Hafnarfjörður, IS
Year Founded
2010
Website
isavia.is
Social Media