Eimskip

Rafvirki eða vélvirki á vélaverkstæði Eimskips á Mjóeyrarhöfn

Eimskip  •  Onsite  •  11 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Vélaverkstæði Eimskips á Mjóeyrarhöfn leitar að öflugum rafvirkja eða vélvirkja í framtíðarstarf.

Við bjóðum upp á fjölbreytt og krefjandi verkefni í fyrsta flokks vinnuaðstöðu þar sem fagmennska og öryggi eru í forgrunni. Verkstæðið er hluti af samheldnu teymi sem vinnur að viðhaldi og uppbyggingu tækja og búnaðar sem styður við alþjóðlega flutningsstarfsemi Eimskips.

Ef þú hefur áhuga á tæknilegum lausnum, vinnur af nákvæmni og átt auðvelt með að vinna í hóp – þá viljum við heyra frá þér!

Um er að ræða fullt starf alla virka daga, vinnutími er 08:00-16:00.

Starfs- og ábyrgðarsvið:

  • Viðhald og viðgerðir á bílum, vinnuvélum og tækjum
  • Bilanagreiningar
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Sveinspróf í rafvirkjun, bifvélavirkjamenntun, vélvirkjamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af viðgerðum á lyfturum og frystikerfum er kostur
  • Reynsla af stýrisbúnaði og raflögnum er kostur
  • Íslenskukunnátta er skilyrði
  • Góð þjónustulund og jákvæðni

Fríðindi í starfi:

  • Öflugt starfsmannafélag sem rekur m.a. orlofshús víðsvegar um landið
  • Heilsu- og hamingjupakki fyrir starfsfólk sem inniheldur m.a. heilsuræktarstyrk, sálfræðiþjónustustyrk, samgöngustyrk og fleira

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingólfur Jóhannsson, ijzv@eimskip.com.

Eingöngu er tekið á móti umsóknum í gegnum vefsvæði Eimskips, www.eimskip.is.

Umsóknarfrestur er til og með 8. júní 2026 Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.

Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.

Eimskip er alþjóðlegt flutningafyrirtæki sem sinnir gáma- og frystiflutningum í Norður-Atlantshafi og sérhæfir sig í flutningsmiðlun með áherslu á flutninga á frosinni og kældri vöru. Með siglingakerfi sínu tengir Eimskip saman Evrópu og Norður-Ameríku í gegnum Ísland. Félagið starfrækir 56 skrifstofur í 20 löndum og hefur á að skipa fjölbreyttum hópi starfsfólks en í heildina starfa um 1.700 manns af 43 þjóðernum hjá félaginu.

Eimskip leggur áherslu á jafnrétti, heilsu og vellíðan starfsfólks þar sem markvisst er unnið í samræmi við jafnréttisáætlun að jafnri stöðu starfsfólks óháð kyni og leitast eftir því að hafa vinnuumhverfið sem öruggast og heilsusamlegast. Í anda jafnréttisstefnu Eimskips eru öll kyn hvött til að sækja um.

Eimskip

About Eimskip

Eimskip, founded in 1914, is a publicly traded company listed on Nasdaq Iceland. It operates a network of 57 offices in 20 countries, with a fleet of 14 vessels and about 1,700 employees. Approximately half of its revenue is generated from operations outside of Iceland.

The Company’s vision is to provide outstanding transportation services through a dependable transport system in the North Atlantic and an extensive worldwide network of reefer logistics services.

The Company’s values are: Achievement – Cooperation – Trust.

Industry
Transportation & Logistics
Company Size
501-1,000 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1914
Social Media