Við Oddeyrarskóla eru laus til umsóknar tímabundin staða umsjónarkennara á unglingastigi í 80-100% starfshlutfalli. Helstu kennslugreinar eru stærðfræði, náttúrufræði og samfélagsfræði.
Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026 til 31. júlí 2027.
Í Oddeyrarskóla vinnum við saman að því að skapa skólasamfélag sem nær árangri. Það einkennist af jákvæðum skólabrag, áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum. Oddeyrarskóli er heilsueflandi grunnskóli. Unnið er eftir hugmyndafræði SMT og eru einkunnarorð skólans ábyrgð, virðing og vinátta Oddeyrarskóli er við Víðivelli á Akureyri og er fjöldi nemenda um 170. Kennarar skólans starfa saman í teymum og nemendur vinna gjarnan saman í aldursblönduðum hópum.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.oddeyrarskoli.is
Leitað er að jákvæðum, lausnamiðuðum og samviskusömum einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
Starfssvið:
Kennari er hluti af kennarateymi stigsins, sinnir kennslu nemenda í samstarfi og samvinnu við aðra starfsmenn skólans og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra. Umsjónarkennari hefur yfirumsjón með hópi nemenda í árgangi og hefur aðkomu að öllum þeirra málefnum innan skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, reynslu og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi umsjónarkennara.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Allar nánari upplýsingar veita Anna Bergrós Arnarsdóttir skólastjóri aber@akmennt.is og Margrét Th. Aðalgeirsdóttir maggath@akmennt.is og Fjóla Kristín Helgadóttir fkh@akmennt.is deildarstjórar. Einnig er hægt að leita upplýsinga í síma 4609550.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2026.
