Við Oddeyrarskóla er laus til umsóknar 20 - 40% ótímabundin staða náms- og starfsráðgjafa.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Í Oddeyrarskóla er áhersla lögð á samvinnu starfsfólks og vellíðan nemenda. Þar er unnið að því að skapa skólasamfélag sem einkennist af jákvæðum skólabrag, áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum. Skólinn starfar samkvæmt hugmyndafræði SMT skólafærni og er heilsueflandi grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, virðing og vinátta og lögð er áhersla á að þau setji mark sitt á allt starf í skólanum. Oddeyrarskóli er fámennasti hverfisskólinn á Akureyri með um 180 nemendur.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.oddeyrarskoli.is
Leitað er að jákvæðum og samviskusömum einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans. Hlutverk námsráðgjafa er að standa vörð um velferð allra nemenda og veita ráðgjöf varðandi nám, námstækni og námsvenjur.
Starfssvið:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, reynslu og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi námsráðgjafa.
Starfsmenn skólans gegna starfinu samkvæmt grunnskólalögum, reglugerðum, starfslýsingum, kjarasamningum, og mannauðsstefnu Akureyrarbæjar eftir því sem við á.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Allar nánari upplýsingar um starfið veita Anna Bergrós Arnarsdóttir skólastjóri, aber@akmennt.is Fjóla Kristín Helgadóttir deildarstjóri, fkh@akmennt.is og Margrét Th. Aðalgeirsdóttir deildarstjóri, maggath@akmennt.is eða í síma 4609550.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 11. júní 2026.
