Við Oddeyrarskóla er laus til umsóknar staða kennara í ÍSAT, íslenska sem annað tungumál, í 50-60% stöðu. Ráðningin er tímabundin skólaárið 2026-2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Ráðið er frá 01.08.2026.
Í Oddeyrarskóla er áhersla lögð á samvinnu starfsfólks og vellíðan nemenda. Þar er unnið að því að skapa skólasamfélag sem einkennist af jákvæðum skólabrag, áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum. Skólinn starfar samkvæmt hugmyndafræði SMT skólafærni og er heilsueflandi grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, virðing og vinátta og lögð er áhersla á að þau setji mark sitt á allt starf í skólanum. Oddeyrarskóli er fámennasti hverfisskólinn á Akureyri með um 180 nemendur.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.oddeyrarskoli.is
Leitað er að jákvæðum, lausnamiðuðum og samviskusömum einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
Starfssvið:
Kennari er hluti af kennarateymi skólans, sinnir kennslu nemenda í samstarfi og samvinnu við aðra starfsmenn skólans og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra. ÍSAT kennari hefur sinnir kennslu í íslensku sem öðru tungumáli og hefur aðkomu að aðlögun námsefnis í samráði við aðra kennara skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, reynslu og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi kennara.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Allar nánari upplýsingar veita Anna Bergrós Arnarsdóttir skólastjóri aber@akmennt.is og Fjóla Kristín Helgadóttir fkh@akmennt.is og Margrét Th. Aðalgeirsdóttir maggath@akmennt.is deildarstjórar. Einnig er hægt að leita upplýsinga í síma 4609550.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 10. júní 2026.
