Vilt þú vera með okkur í spennandi vegferð í nýju þjónustuúrræði fyrir aldraða í glæsilegri starfsstöð Heilsuverndar að Urðarhvarfi 16?
Heilsuvernd óskar eftir að ráða nema í læknis- og hjúkrunarfræðum í sumarstörf. Um fullt starf eða hlutastarf er að ræða.
Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.
Við leitum að einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Almenn störf tengd fagsviði viðkomandi
- Skipulag og ábyrgð á að hjúkrun sé veitt í samræmi við sett markmið og gæðastefnu Heilsuverndar
- Eftirlit og mat á gæðum
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Krafa um að viðkomandi hafi lokið að lágmarki 2. ári í hjúkrunarfræði eða 3. ári í læknisfræði frá viðurkenndri menntastofnun
- Áhugi á öldrunarþjónustu og vinnu með öldruðum
- Starfsreynsla í öldrunarþjónustu er æskileg
- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð samskiptahæfni
- Þolinmæði og sveigjanleiki
- Umsækjandi þarf að geta talað og skrifað íslensku
Um fullt starf eða hlutastarf í sumar er að ræða eða samkvæmt samkomulagi.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Öllum umsóknum verður svarað. Ráðið er í störfin óháð kyni.
Nánari upplýsingar veitir Hanna Guðlaugsdóttir framkvæmdastjóri mannauðs ( hanna@hv.is) eða Fríður Brandsdóttir framkvæmdastjóri Heilsuverndar ( fridur@hv.is).
Heilsuvernd samstæðan er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Markmið okkar er að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan. Því hver dagur er dýrmætur

Heilsuvernd is the largest preventive health care company in Iceland celebrating 25 years of business in the sectors of occupational health and safety, general practice, absence management and corporate medicine. We also run the largest online health information website in Iceland called www.doktor.is