Heilsuvernd Hjúkrunarheimili óska eftir að ráða lækna- og hjúkrunarnema til starfa á Hlíð og Lögmannshlíð.
Við leitum að einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, sýna lipurð í þjónustu og eru sjálfstæðir í vinnubrögðum en vilja um leið vera hluti af sterku teymi fagfólks og eru tilbúnir að takast á við spennandi námstækifæri.
Um er að ræða vaktavinnu og mislangar vaktir. Unnið er þriðju hvoru helgi.
Fyrsti starfsdagur er eftir samkomulagi en æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Menntunar og hæfnikröfur:
Krafa um að viðkomandi hafi lokið 2. ári í hjúkrunarfræði eða a.m.k. 3 ári í læknisfræði
Áhugi á að starfa með öldruðum
Færni í tölvunotkun
Hjá Heilsuvernd Hjúkrunarheimili fer fram fjölbreytt og áhugaverð starfsemi í öldrunarþjónustu sem er í stöðugri þróun. Unnið er eftir Eden hugmyndafræðinni með áherslu á sjálfstæði, góðan heimilisbrag og lífsgæði íbúanna.
Upplýsingar um Heilsuvernd Hjúkrunarheimili má finna á heimasíðunni www.hlid.is
Skilyrði fyrir ráðningu er hrein sakaskrá.
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Jóhanna Berglind Bjarnadóttir, forstöðumaður í Lögmannshlíð, á netfanginu johannabb@hlid.is
Einungis er tekið á móti umsóknum á ráðningarsíðu Heilsuverndar Hjúkrunarheimilis.

Heilsuvernd is the largest preventive health care company in Iceland celebrating 25 years of business in the sectors of occupational health and safety, general practice, absence management and corporate medicine. We also run the largest online health information website in Iceland called www.doktor.is