Akureyrarbær

Naustaskóli: Umsjónarkennari á unlingastigi

Akureyrarbær  •  Onsite  •  16 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Í Naustaskóla er laus 100% ótímabundin staða umsjónarkennara á unglingastigi. Leitað er að metnaðarfullum og drífandi kennara til að taka þátt í framsæknu skólastarfi.

Skólinn starfar eftir stefnu opins skóla þar sem áhersla er lögð á teymiskennslu og einstaklingsmiðað nám.

Ráðið er frá 1. ágúst 2026.

Í Naustaskóla er er lögð áhersla á jákvæðan aga, teymiskennslu, námsaðlögun og faglegt samstarf. Kennarar kenna saman á opnum svæðum og skapa saman lærdómssamfélag með sérstakri áherslu á að koma til móts við hvern og einn nemanda.

Einkunnarorð Naustaskóla eru „Námsaðlögun – Athvarf – Umhyggja – Samvinna – Táp og fjör – Allir með!“

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.naustaskoli.is

Starfssvið – helstu verkefni

Kennari er hluti af kennarateymi, sinnir kennslu nemenda í samstarfi og samvinnu við kennara teymisins og aðra starfsmenn skólans og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra

Menntunarkröfur:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
  • Framhaldsmenntun er æskileg

Hæfniskröfur:

  • Hefur á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og getu nemenda.
  • Reynsla af teymiskennslu æskileg.
  • Áhugi á að starfa í teymi
  • Þekking og/eða vilji til að starfa eftir hugmyndafræði Jákvæðs aga
  • Góðir skipulagshæfileikar.
  • Frumkvæði og samstarfsvilji.
  • Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Að vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi.
  • Áhugi á þróunarstarfi.
  • Gerð er krafa um vammleysi s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Allar nánari upplýsingar veitir Bryndís Björnsdóttir skólastjóri í síma 460-4101, netfang dis@akmennt.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 29. maí 2026.

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown