Við leitum að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi til starfa á skrifstofu og í móttöku hjá traustu fyrirtæki miðsvæðis í Reykjavík.
Starfið er fjölbreytt og hentar vel einstaklingi sem hefur ánægju af samskiptum, leggur metnað í að veita góða þjónustu og á auðvelt með að halda utan um ólík verkefni. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri skipulagshæfni og leggja áherslu á faglega og hlýlega framkomu.
Inga S. Arnardóttir - inga@hagvangur.is

Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem stofnað var árið 1971 og býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum.
Hagvangur þjónustar árlega hundruði viðskiptavina við allt sem snýr að ráðningum og mannauðsráðgjöf. Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi og höfum við áralanga þekkingu og reynslu af atvinnulífinu. Það ásamt breiðu tengslaneti og góðu orðspori eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af.