Grund

Mörk - Laus störf við umönnun

Grund  •  Onsite  •  11 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Mörk hjúkrunarheimili óskar eftir hressu og duglegu starfsfólki til að starfa með okkur við umönnun aldraðra.

Mörk er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfa rúmlega 200 manns. Áhersla er lögð á góðan starfsanda, sterka liðsheild og hvetjandi starfsumhverfi. Grundarheimilin fengu jafnlaunavottun árið 2020 og hvetjum við öll kyn til að sækja um.

Í boði er skemmtilegt og gefandi starf sem felur í sér að aðstoða heimilismenn við almenna umönnun, gleðjast og njóta samveru með þeim.

Í boði eru störf þar sem unnar eru blandaðar vaktir í góðum hóp starfsmanna. Óskað er eftir starfsfólki í framtíðar- og sumarstörf.

Menntunar- og hæfniskröfur:

· Íslenskukunnátta

· Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni

· Starfsmaður þarf að hafa náð 18 ára aldri

· Stundvísi og metnaður í starfi

· Reynsla í umönnun er mikil kostur

Fríðindi í starfi

· Aðgangur að heilsustyrk

· Stytting vinnuvikunnar

Greitt er eftir kjarasamningi Eflingar og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Á Grundarheimilunum vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð. Vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.

Grundarheimilin starfa eftir Eden hugmyndafræðinni.

Nánari upplýsingar um starfið veitir:

Mannauðsdeild Grundarheimilanna

laun@grund.is

Við hlökkum til að heyra í þér!

Grund

About Grund

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Website
grund.is
Social Media
Unknown