Advania leitar að reynslumiklum einstaklingi í sérfræðiteymi notenda- og útstöðvaþjónustu. Kjarni starfsins er uppsetning, rekstur, stýring og sjálfvirknivæðing Microsoft 365, Entra ID og Intune umhverfum.
Sérfræðiteymið er hópurinn á bakvið framlínuna. Teymið vinnur þétt með framlínunni ásamt öðrum sérfræðiteymum Advania.
Teymið ber tæknilega ábyrgð á þjónustukerfum og ferlum sem deildin rekur og betrumbætir. Teymið sinnir einnig innleiðingum og flóknari verkefnum. Mikil áhersla er lögð á stöðugt, öruggt og otendavænt rekstrarumhverfi en einnig að einfalda, sjálfvirknivæða og bæta þá þjónustu, kerfi og ferla sem notuð eru við þjónustuveitinguna.
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.
Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.
Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.
Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Skúli Axelsson, deildarstjóri Notenda- og útstöðvarþjónustu, skuli.axelsson@advania.is / 4409000.

Markmið okkar er að stuðla að jákvæðum áhrifum á samfélagið með snjallri notkun upplýsingartækninnar.