Mögnum

MARKAÐS- OG FJÖLMENNINGARFULLTRÚI

Mögnum  •  Onsite  •  21 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Mýrdalshreppur óskar eftir að ráða öflugan og drífandi einstakling í starf markaðs- og fjölmenningarfulltrúa.

Um fjölbreytt og lifandi framtíðarstarf er að ræða sem krefst góðrar færni á ýmsum sviðum.

Starfshlutfall er 100% og heyrir starfið undir sveitarstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með markaðs-, kynningar- og ímyndarstarf Mýrdalshrepps
  • Umsjón með heimasíðu, samfélagsmiðlum og annarri upplýsingamiðlun sveitarfélagsins
  • Gerð og miðlun frétta og kynningarefnis um þjónustu, verkefni og viðburði sveitarfélagsins
  • Samstarf við fyrirtæki, félagasamtök og aðra hagaðila um kynningu á samfélaginu og þátttaka í viðburðum og samfélagsverkefnum
  • Umsjón og eftirfylgni með fjölmenningarmálum sveitarfélagsins með áherslu á virka þátttöku allra íbúa
  • Að vinna að bættu aðgengi að upplýsingum og þjónustu sveitarfélagsins fyrir íbúa óháð tungumáli og uppruna
  • Samræma verkefni sem styðja við móttöku nýrra íbúa, íslenskukennslu og samfélagsþátttöku
  • Samstarf við skóla, stofnanir, atvinnurekendur, félagasamtök og aðra aðila um fjölmenningarverkefni og samfélagslega þátttöku
  • Ráðgjöf, þróunarverkefni, styrkumsóknir og önnur verkefni sem falla að starfssviðinu

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg
  • Reynsla af markaðs- og kynningarstarfi er kostur
  • Reynsla af fjölmenningarstarfi, samfélagsverkefnum eða verkefnastjórnun er kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný stafræn verkfæri
  • Mjög góð færni til samstarf og samskipta
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
  • Hæfni til að miðla upplýsingum á skýran, aðgengilegan og áhugaverðan hátt
  • Jákvætt viðmót og áhugi á samfélagsþróun og fjölbreyttu mannlífi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2026

Sótt er um starfið á www.mognum.is

Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

Nánari upplýsingar veita:

Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is

Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is

Mögnum

About Mögnum

Öflugt og framsækið þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðningum, ráðgjöf, fræðslu og markþjálfun fyrir fólk og vinnustaði sem vilja ná lengra.

Mögnum leggur áherslu á viðurkenndar nálganir og faglegar aðferðir sem skila viðskiptavinum virði og árangri. Mögnum var stofnað árið 2017 og er eina fyrirtækið sem býður upp á sambærilega þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins.

Mögnum það sem á svæðinu býr svo við eflumst sem samfélag.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
1-10 employees
Headquarters
Akureyri, IS
Year Founded
2017
Website
mognum.is
Social Media