Matís leitar að öflugum og fjölhæfum leiðtoga til að leiða mannauðsmál vinnustaðarins. Við leitum að aðila sem hefur stefnumótandi sýn og getu til að hrinda verkefnum í framkvæmd, byggja upp traust samstarf og styðja stjórnendur og starfsfólk í síbreytilegu og metnaðarfullu starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Hlutverk Matís er að efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs og tryggja matvælaöryggi, lýðheilsu og sjálfbæra nýtingu umhverfisins með rannsóknum, nýsköpun og þjónustu. Matís leggur áherslu á hagnýtar rannsóknir sem auka verðmæti íslenskrar matvælaframleiðslu, stuðla að öryggi og heilnæmi afurða og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda.
Hjá Matís starfar um 100 manna kraftmikill hópur sem brennur fyrir því að finna nýjar leiðir til að hámarka nýtingu hráefnis, auka sjálfbærni, tryggja matvælaöryggi og efla lýðheilsu.
Nánari upplýsingar veitir
Stefanía Hildur Ásmundsdóttir - stefania@hagvangur.is

Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem stofnað var árið 1971 og býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum.
Hagvangur þjónustar árlega hundruði viðskiptavina við allt sem snýr að ráðningum og mannauðsráðgjöf. Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi og höfum við áralanga þekkingu og reynslu af atvinnulífinu. Það ásamt breiðu tengslaneti og góðu orðspori eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af.