Job Description
Vertu með í fjölbreyttum verkefnum Mannauðs og Menningar hjá Krónunni.
Við í Krónunni erum að leita að kraftmiklum einstaklingi sem brennur fyrir mannauðsmálum. Um fullt starf er að ræða. Við erum á fleygiferð í rafvæðingu ferla og einnig í fræðslumálum, því er mikilvægt að nýr teymisfélagi brenni fyrir slíkum verkefnum og búi yfir hæfni til að leiða slík verkefni.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Eignarhald og ábyrgð á ákveðnum verkefnum sem fela í sér gagnagreiningu, skilgreiningu verkefna út frá þeim greiningum og innleiðingu þeirra sem felur í sér ráðgjöf til stjórnenda og/eða starfsfólks.
- Þátttaka í umbótaverkefnum
- Sinna fræðslu og þróun fræðsluverkefna
- Dagleg umsýsla verka (almenn rekstrarverkefni mannauðs)
- Ráðgjöf og þjónusta við starfsfólk og stjórnendur
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í mannauðsstjórnun
- +3 ára reynsla af mannauðsstarfi eða haldbær reynsla sem stjórnandi
- Mjög góð tölvukunnátta og búa yfir hæfni til að læra á ný kerfi. Dæmi um kerfi sem unnið er í: H3, 50skills (Journey og Hire) , Teams, MyTimePlan, Workvivo og helstu forrit O365.
- Hafa ánægju af því að halda fyrirlestra og námskeið
- Búa yfir sjálfsöryggi og hæfni til að fylgja verkum til fullnustu
- Vönduð vinnubrögð sbr. skilgreint verklag (t.d. skjölun)
- Vilji til að læra og fagna breytingum
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í máli og ritun
Krónan býður upp á fjölbreyttan og metnaðarfullan vinnustað þar sem hægt er að hafa áhrif og leiða verkefni með sýnilegum árangri.
Hjá Krónunni starfa um 1200 manns, við eigum ánægðustu viðskiptavinina 9. árið í röð og erum með jafnlaunavottun VR.
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí.
Nánari upplýsingar veitir Ásta Bærings forstöðumaður mannauðs og menningar, ( baerings@kronan.is)