Eimskip

Mannauðsráðgjafi á Austurlandi

Eimskip  •  Onsite  •  2 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Eimskip leitar að öflugum og metnaðarfullum mannauðsráðgjafa til starfa á Austurlandi. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttum mannauðsmálum, nýtur þess að vinna með fólki og vill vera virkur samstarfsaðili stjórnenda í öflugu rekstrarumhverfi.

Starfsstöð er á skrifstofu Eimskips við Mjóeyrarhöfn.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita stjórnendum ráðgjöf og stuðning í daglegum mannauðsmálum
  • Tryggja innleiðingu og framkvæmd mannauðsstefnu félagsins
  • Taka þátt í þróun og innleiðingu mannauðstengdra umbótaverkefna
  • Skipuleggja og framkvæma ráðningaferli í samstarfi við stjórnendur
  • Samræma móttöku, þjálfun og aðlögun nýliða
  • Umsjón með mannauðstengdum mælikvörðum, greiningu gagna og framsetningu niðurstaðna
  • Styðja stjórnendur við undirbúning, framkvæmd og úrvinnslu starfsmannasamtala
  • Styðja við endurmenntun og starfsþróun starfsfólks í samstarfi við stjórnendur
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntun og hæfniskröfur:

  • Haldbær reynsla af mannauðsmálum æskileg
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Góð tölvukunnátta og færni til að læra á ný kerfi
  • Mikil skipulagshæfni og jákvætt viðhorf
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Framúrskarandi samskiptafærni og rík þjónustulund

Fríðindi í starfi

  • Farsímaáskrift og nettenging heima
  • Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
  • Öflugt starfsmannafélag og aðgangur að orlofshúsum víðs vegar um landið
  • Heilsu- og hamingjupakka sem inniheldur m.a. samgöngustyrk, líkamsræktarstyrk, styrk fyrir sálfræðiþjónustu og krabbameinsskoðun

Nánari upplýsingar um starfið veitir Pétur F. Jónsson, svæðisstjóri á Austurlandi, pejo@eimskip.com.

Umsóknarfrestur er til og með 5. júlí 2026.

Í anda jafnréttisstefnu Eimskips eru öll kyn hvött til að sækja um. Umsóknum skal skilað í gegnum heimasíðu Eimskips, www.eimskip.is Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.

Eimskip

About Eimskip

Eimskip, founded in 1914, is a publicly traded company listed on Nasdaq Iceland. It operates a network of 57 offices in 20 countries, with a fleet of 14 vessels and about 1,700 employees. Approximately half of its revenue is generated from operations outside of Iceland.

The Company’s vision is to provide outstanding transportation services through a dependable transport system in the North Atlantic and an extensive worldwide network of reefer logistics services.

The Company’s values are: Achievement – Cooperation – Trust.

Industry
Transportation & Logistics
Company Size
501-1,000 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1914
Social Media