Undir skóla- og frístundasvið heyra grunnskólar, leikskólar, frístundaheimili, félagsmiðstöðvar og skólahljómsveitir alls um 170 starfsstaðir og þar starfa um 6000 manns. Mannauðsráðgjafi starfar í teymi með öðrum mannauðsráðgjöfum á sviðinu og einnig er um að ræða samstarf mannauðsráðgjafa á milli sviða borgarinnar. Verkefnin eru því gríðarlega fjölbreytt og mikilvæg þar sem þau snúa m.a. að mannauðsmálum leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs. Hér er því frábært tækifæri fyrir einstakling sem er að leita eftir fjölbreytni í starfi og tækifæri til að sinna ráðgjöf til stjórnenda og leiða ýmis mannauðstengd verkefni.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf.
Upphaf starfs er samkomulag.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður E. Stefánsdóttir, mannauðsstjóri, netfang: ragnheidur.e.stefansdottir@reykjavik.is

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.