Veitur

Lykilsérfræðingur í leyfis- og skipulagsmálum

Veitur  •  Onsite  •  10 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Vilt þú hafa áhrif á framgang mikilvægra innviðaverkefna?

Veitur leita að öflugum sérfræðingi til að taka að sér lykilhlutverk í skipulags- og leyfismálum félagsins. Hlutverkið snýst um að tryggja rými fyrir lagnaleiðir og veitumannvirki á skipulagsstigi, leiða leyfismál og vera rödd Veitna gagnvart sveitarfélögum og leyfisveitendum. Um er að ræða nýtt starf þar sem viðkomandi heldur utan um leyfisferli framkvæmdaverkefna og styður við undirbúning þeirra í samstarfi við viðskiptastjóra, verkefnastjóra og aðra hagaðila.

Helstu verkefni

  • Sækja um og fylgja eftir leyfum fyrir framkvæmdaverkefni hjá sveitarfélögum, ríki og öðrum leyfisveitendum.
  • Tala máli verkefnanna við helstu hagaðila og byggja tengsl við sveitarfélög, lykilhagaðila og leyfisveitendur.
  • Halda utan um leyfismál, tímalínur og eftirfylgni frá undirbúningi til niðurstöðu.
  • Fylgjast með lögum, reglugerðum og breytingum á málaflokknum og taka þátt í hagsmunagæslu Veitna.

Hæfni og reynsla

  • Menntun á sviði skipulagsfræða, arkitektúrs, verkfræði eða skyldra greina sem nýtist í starfi.
  • Haldbær reynsla af því að fara með mál eða verkefni í gegnum stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga.
  • Þekking á leyfisferlum framkvæmdaverkefna og reynsla af verkefnastjórnun.
  • Góð samskiptahæfni, sannfæringarkraftur og hæfni til að tala fyrir verkefnum og byggja upp sambönd við hagaðila.
  • Góð yfirsýn og eftirfylgni yfir lengri tíma, læsi á lög og reglugerðir og gott vald á íslensku og ensku.

Starf þar sem þú hefur áhrif

Þetta er tækifæri til að hafa bein áhrif á undirbúning og framgang mikilvægra verkefna sem styðja við innviði samfélagsins. Þú verður hluti af öflugu þjónustusviði þar sem fagmennska, samvinna og traust samskipti eru í forgrunni.

Hvers vegna Veitur?

Veitur eru framsækið þjónustufyrirtæki sem tengir samfélagið við rafmagn, hita, hreint vatn og fráveitu. Með nýsköpun og samstarfi veitum við lífsgæði til framtíðar. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og þjónustar ríflega 70% landsmanna. Við setjum viðskiptavininn í fyrsta sæti og erum stöðugt að bæta okkur og finna leiðir til þess að þjónusta viðskiptavini okkar enn betur.

Til að vita meira um hvernig er að starfa hjá Veitum er tilvalið að heimsækja www.veitur.is/vinnustadurinn

Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2026 Nánari upplýsingar veitir Halldóra Hinriksdóttir forstöðukona Þjónustu hjá Veitum, halldora.gudrun.hinriksdottir@veitur.is

Veitur

About Veitur

Veitur Utilities is the biggest utility company in Iceland; we provide important services for the public benefit and ensure that users have continued access to hot water supplies, electricity, water and wastewater systems.

More info here:

In Icelandic: https://www.veitur.is/storfin

In English: https://www.veitur.is/en/storfin

Copy and paste this link to apply for a job: https://starf.or.is/veitur/

Industry
Energy & Utilities
Company Size
51-200 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
2014
Website
veitur.is
Social Media