Lyfja

Lyfja Smáratorgi - Hjúkrunarfræðingur í hjúkrunarþjónustu

Lyfja  •  Onsite  •  5 months ago
Expired
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi í hjúkrunarþjónustu Lyfju á Smáratorgi. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf í líflegu umhverfi þar sem aðaláherslan er á faglega þjónustu og ráðgjöf í heilsueflingu og forvörnum. Í hjúkrunarþjónustu Lyfju starfar hópur hjúkrunarfræðinga og sérhæfðs starfsfólks sem sinnir þjónustu við fjölbreyttan hóp viðskiptavina á lifandi og skemmtilegum vinnustað.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Þjónusta og ráðgjöf á heilsu- og hjúkrunarvörum, s.s. stómavörum, þvagleggjum og næringardrykkjum.
  • Hjúkrunarþjónusta, þar á meðal heilsufarsmælingar, sáraumbúðaskipti, sprautugjöf og árstíðabundnar bólusetningar.
  • Ráðgjöf og fræðsla um heilsueflingu og forvarnir.
  • Önnur tilfallandi verkefni tengd hjúkrunarþjónustu.

Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi.
  • Þekkingu og áhuga á heilsueflingu og forvarnarstarfi.
  • Góða samskiptahæfni og ríka þjónustulund.
  • Getu til að vinna í teymi.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.

Starfið:

Um hlutastarf er að ræða. Vinnutími er frá 08:00-16:00, 2-3 virka daga í viku með möguleika á frekari afleysingum.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu, heilsueflingu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Lyfja rekur 45 apótek og útibú víðs vegar um landið, sem gefur starfsfólki kost á fjölbreyttum og spennandi tækifærum, hvar sem er á landinu.

Nánari upplýsingar um starfið veita:

Ingibjörg Arnardóttir, lyfsali Lyfju Smáratorgi, ingibjorg@lyfja.is og

Hrafnkatla Valgeirsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur, hrafnkatla@lyfja.is

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Lyfja

About Lyfja

Lyfja er eitt elsta einkarekna apótek landsins en fyrirtækið hóf starfsemi sína með opnun Lyfju Lágmúla 1996. Í dag rekur Lyfja 45 apótek og útibú um allt land með það markmið að lengja líf og auka lífsgæði.

Industry
Retail & Ecommerce
Company Size
51-200 employees
Headquarters
, IS
Year Founded
1996
Website
lyfja.is
Social Media