Við leitum að sjálfstæðum og metnaðarfullum lyfjafræðingi í Lyfju á Ísafirði.
Eitt af því sem gerir starf lyfjafræðings hjá Lyfju á Ísafirði sérstaklega skemmtilegt er hin mikla fjölbreytni. Hér veitum við lyfjafræðilega ráðgjöf, þjónustum einstaklinga og útibú, förum yfir fjölda skipskistna og þjónustum og sinnum einstaklingum í lyfjaskömmtun.
Hlutverk og ábyrgð
Hvaða hæfni þarft þú að hafa?
Starfið
Vinnutími er frá 10:00–18:00 alla virka daga og annan hvern laugardag eða skv. samkomulagi.
Starfið er laust nú þegar og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veita:
Jónas Þór Birgisson, lyfsali Lyfju Ísafirði í síma 456-3009 og á jonas@lyfja.is og
Anna Sólmundsdóttir, sérfræðingur í ráðgjöf og lyfjafræðilegri þjónustu anna@lyfja.is
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu, heilsueflingu og stöðuga nýsköpun.
Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Lyfja rekur 45 apótek og útibú víðs vegar um landið, sem gefur starfsfólki kost á fjölbreyttum og spennandi tækifærum, hvar sem er á landinu.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Lyfja er eitt elsta einkarekna apótek landsins en fyrirtækið hóf starfsemi sína með opnun Lyfju Lágmúla 1996. Í dag rekur Lyfja 45 apótek og útibú um allt land með það markmið að lengja líf og auka lífsgæði.