Við leitum að framsýnum og metnaðarfullum lyfjafræðingi í stöðu lyfsala í verslun okkar í Mosfellsbæ.
Þú leiðir fólk, rekstur og þjónustu. Lyfsalar Lyfju eru leiðtogar sem byggja upp sterkt teymi, tryggja góðan og skilvirkan rekstur og leiða með fagmennsku og þjónustu að leiðarljósi.
Þú skapar traust, skýrleika og samvinnu í teyminu – og styður fólkið þitt til árangurs. Þú berð ábyrgð á rekstri verslunarinnar, fylgist með lykilmælikvörðum og nýtir gögn til að taka upplýstar ákvarðanir. Jafnframt ert þú fagleg fyrirmynd og byggir upp menningu þar sem góð ráðgjöf, hlýleg þjónusta og raunverulegur áhugi á heilsu og vellíðan viðskiptavina er hluti af daglegu starfi teymisins.
Í Lyfju Mosfellsbæ er receptúrinn frammi við verslun og lyfsali og aðrir í teyminu starfa því í nánum tengslum við viðskiptavini. Það skapar einstakt tækifæri til að skapa sterka ráðgjafar- og þjónustumenningu þar sem fagmennska er sýnileg í hverju samtali.
Umsóknarfrestur er til og með 30. september. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Þórbergur Egilsson, forstöðumaður verslanasviðs | the@lyfja.is eða Ásdís Eir Símonardóttir, forstöðumaður mannauðs og menningar | asdiseir@lyfja.is
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.
Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Lyfja er eitt elsta einkarekna apótek landsins en fyrirtækið hóf starfsemi sína með opnun Lyfju Lágmúla 1996. Í dag rekur Lyfja 45 apótek og útibú um allt land með það markmið að lengja líf og auka lífsgæði.