Lyfja

Lyfja Húsavík - þjónusta og ráðgjöf - sumarstarf

Lyfja  •  Onsite  •  3 months ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum starfsmanni með ríka þjónustulund í sölu- og afgreiðslustarf í sumar í Lyfju Húsavík. Starfið felst í að veita almenna ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og að tryggja góða þjónustuupplifun.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Þjónusta og almenn afgreiðslustörf
  • Áfyllingar í verslun
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli

Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Ríka þjónustulund og gott viðmót
  • Áhuga á mannlegum samskiptum
  • Áhuga á heilsu og vellíðan
  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur

Starfið:

Vinnutími er 10:00-18:00 eða samkvæmt samkomulagi.

Umsækjandi þarf að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og hafa náð 18 ára aldri.

Nánari upplýsingar veitir Írena Ásgeirsdóttir, lyfsali Lyfju Húsavík í síma 866-2933 og á irena@lyfja.is

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Lyfja

About Lyfja

Lyfja er eitt elsta einkarekna apótek landsins en fyrirtækið hóf starfsemi sína með opnun Lyfju Lágmúla 1996. Í dag rekur Lyfja 45 apótek og útibú um allt land með það markmið að lengja líf og auka lífsgæði.

Industry
Retail & Ecommerce
Company Size
51-200 employees
Headquarters
, IS
Year Founded
1996
Website
lyfja.is
Social Media