Job Description
Við Lundarskóla er laus til umsóknar 100% staða skólaritara. Vinnutími hefst klukkan 7:45 alla virka daga. Um er að ræða ótímabundna stöðu. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Leitað er að einstaklingi með metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
Lundarskóli er staðsettur við Dalsbraut og er fjöldi nemenda um 480 og 95 starfsmenn. Í skólanum er unnið með SMT skólafærni og heilsueflandi skóla. Lundarskóli leggur áherslu á teymisvinnu og framþróun í skólastarfi.
Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, virðing, vellíðan
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.lundarskoli.is
Starfssvið:
- Annast símavörslu og aðra umsjón á skiptiborði.
- Tekur við fjarvistartilkynningum, skráir fjarvistir og hringir heim til nemenda í samráði við kennara.
- Hefur eftirlit með tækjum og gögnum á skrifstofu og vinnuherbergi starfsfólks.
- Sér um pantanir og móttöku á ritföngum og tilfallandi námsgögnum fyrir nemendur og starfsfólk.
- Annast innritun nemenda í skólann og heldur utan um nemendaskrá.
- Hefur umsjón með matartorgi og hefur yfirlit yfir skráningar í fæði og aðrar áskriftir.
- Hefur yfirsýn yfir leiguskráningar á skólahúsnæði og heldur utan um innheimtu vegna útleigu í samvinnu við húsvörð og skólastjóra.
- Sinnir upplýsingaflæði til foreldra í samráði við stjórnendur, s.s. með fjölpósti og/eða með fréttum á heimasíðu í samvinnu við stjórnendur skólans.
- Sér um forfallaskráningu starfsfólks og aðstoðar við mönnun varðandi afleysingar í samráði við skólastjórnendur.
- Hefur umsjón með tölvupóstnetfangi skólans, svarar erindum og/eða kemur þeim í réttan farveg.
- Sér um öll neyðarlyf fyrir nemendur sem geymd eru í skólanum í samvinnu við skólahjúkrunarfræðing.
- Situr í öryggis- og áfallateymi skólans.
- Starfsmaður annast önnur þau verkefni sem skólastjóri felur honum og falla undir starfssvið hans.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi.
- Mjög gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli er skilyrði.
- Mjög góð tölvukunnátta.
- Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum við börn og fullorðna.
- Mjög góð þjónustulund.
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði.
- Sveigjanleiki og víðsýni í starfi.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Reglusemi og samviskusemi.
- Gott vald á ensku.
- Starfsmaður þarf að vera jákvæður, traustur og samkvæmur sjálfum sér.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla/ferilskrá um fyrri störf umsækjenda og menntun, reynslu og þau verkefni sem þeir hafa unnið að og varpað geta ljósi á færni þeirra til að sinna starfi skólaritara.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Allar nánari upplýsingar veitir Maríanna Ragnarsdóttir skólastjóri í netfangi marianna@akmennt.is eða í síma 892-9819 eða 462-4888.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 5. júní 2026.