Laust er til umsóknar starf læknis á Grundarheimilunum. Starfið felur í sér læknisþjónustu við íbúa á heimilunum Grund og Mörk.
Starfið er fyrst og fremst unnið á dagvinnutíma, en lækni stendur einnig til boða að taka gæsluvaktir eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er samkomulagsatriði.
Grundarheimilin eru fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfa um 700 manns. Lögð er áhersla á góðan starfsanda, faglegt samstarf og hvetjandi starfsumhverfi. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í þverfaglegu teymi heilbrigðisstarfsfólks, þar sem vönduð þjónusta og fagmennska eru í forgrunni.
Virðing, Vinátta og Vellíðan eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og starfað er eftir Eden hugmyndafræðinni, þar sem lögð er áhersla á lífsgæði, virðingu og einstaklingsmiðaða umönnun.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi .
Starfshlutfall og ráðningarform er samkomulagsatriði.
Nánari upplýsingar veitir:
bjarki@grund.is
