The City of Reykjavik

Listafólk óskast til starfa í hlutastörf í frístundaheimili Tjarnarinnar

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  12 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Ert þú listamaður eða skapandi einstaklingur sem hefur áhuga á að vinna með börnum og hafa jákvæð áhrif á daglegt líf þeirra?

Við leitum að listafólki til hlutastarfa í frístundaheimilunum í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum sem er með bakgrunn eða reynslu á sviði myndlistar, tónlistar, leiklistar, dans, hönnunar, handverks eða annarra skapandi greina sem vilja nýta hæfileika sína í gefandi starfi með börnum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipuleggja og leiða skapandi verkefni og smiðjur.
  • Nýta listir og sköpun til að efla sjálfstraust, tjáningu og samkennd barna.
  • Vera virkur þátttakandi í daglegu starfi frístundaheimilisins.
  • Styðja börn í leik og starfi og stuðla að jákvæðum samskiptum.
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfi frístundaheimilisins.

Hæfniskröfur

  • Hafa áhuga á að vinna með börnum í skapandi verkefnum
  • Búa yfir frumkvæði, jákvæðni og góðri samskiptahæfni.
  • Geta unnið bæði sjálfstætt og í teymi.
  • Hafa reynslu eða menntun á sviði lista eða skapandi greina
  • Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Í boði eru hlutastörf, 20-50% eftir hádegi frá 24. ágúst.

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Athygli er vakin á því að vegna sumarleyfa stjórnenda verður ekki haft samband við umsækjendur fyrr en eftir 3. ágúst.

Starfið hentar jafnt starfandi listafólki, listnemum og öðrum skapandi einstaklingum sem vilja hafa áhrif, miðla þekkingu sinni og upplifa gleði í starfi.

Vertu hluti af starfsemi þar sem sköpun, þátttaka og vellíðan barna eru í forgrunni.

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media