The City of Reykjavik

Lögfræðingur á skrifstofu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  23 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er reiðubúinn til að takast á við krefjandi verkefni.

Velferðarsvið veitir fjölbreytta og metnaðarfulla velferðarþjónustu sem hefur það að meginmarkmiði að stuðla að auknum lífsgæðum íbúa Reykjavíkurborgar. Á velferðarsviði starfa um 3.500 manns á yfir 100 starfsstöðum.

Í samræmi við mannréttinda- og velferðarstefnu Reykjavíkurborgar er lögð rík áhersla á að starfsstaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk af ólíkum menningarlegum bakgrunni til að sækja um.

Skrifstofa velferðarsviðs er með regnbogavottun Reykjavíkurborgar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Margvísleg ráðgjöf fyrir framkvæmdastjórn, aðra stjórnendur og starfsmenn sviðsins á grundvelli þeirra laga, reglugerða og reglna sem gilda um starfsemi sviðsins, s.s. félagsþjónustu, málefna fatlaðs fólks, aldraðra, barna og ungmenna og innflytjenda.
  • Samningagerð.
  • Verkefni er varða persónuvernd.
  • Umsjón með samskiptum við aðrar opinberar stofnanir varðandi ýmis álitaefni í daglegum rekstri.

Hæfniskröfur

  • Kandidats- eða meistarapróf í lögfræði.
  • Reynsla af sviði opinberrar stjórnsýslu.
  • Þekking á verkefnum er varða persónuvernd.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi.
  • Þekking á stjórnsýslu velferðarmála og málefnum innflytjenda er kostur.
  • Íslenskukunnátta á C1-stigi samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Fríðindi í starfi

  • Fyrsta flokks vinnustað
  • Krefjandi og skemmtileg verkefni
  • Góða liðsheild og góð samskipti
  • 36 stunda vinnuviku í fullu starfi
  • Heilsustyrk, menningarkort og frítt í sund
  • Samgöngusamning
  • Niðurgreitt mötuneyti sem býður upp á fjölbreyttan og hollan mat

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Jóna Benediktsdóttir á helga.jona.benediktsdottir@reykjavik.is

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media