Isavia

Lögfræðingur

Isavia  •  Onsite  •  15 days ago
Expired
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Vegna aukinna umsvifa óskum við eftir að ráða metnaðarfullan og jákvæðan lögfræðing til að slást í öflugan hóp starfsfólks Isavia. Viðkomandi mun bera ábyrgð á að veita lögfræðiráðgjöf til allra sviða félagsins í þeim tilgangi að teknar séu vel upplýstar ákvarðanir. Við bjóðum upp á einstakt starfsumhverfi á Íslandi við rekstur alþjóðaflugvallar þar sem verkefnin eru mjög fjölbreytt og krefjandi.

Starfið tilheyrir einingunni Innkaup, lögfræði og upplýsinga- og skjalastjórnun og mun viðkomandi því starfa með öflugum hópi sérfræðinga að því að tengja heiminn í gegnum Ísland.

Helstu verkefni:

  • Ráðgjöf við gerð og yfirlestur samninga og annarra löggerninga
  • Yfirlestur og ráðgjöf vegna útboðsmála
  • Kröfugerð fyrir hönd félagsins í skaðabóta- og innheimtumálum
  • Ráðgjöf vegna vátrygginga-, skipulags- og samkeppnismála
  • Rýni og skoðun á ytri kröfum frá alþjóðastofnunum, Alþingi og ráðuneytum
  • Ýmis önnur margvísleg lögfræðileg verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Embættispróf og/eða meistarapróf í lögfræði
  • Sterk fagleg þekking og reynsla, m.a. í samningarétti, útboðsrétti, kröfurétti, félagarétti, skaðabótarétti, stjórnsýslurétti, EES-rétti og samkeppnismálum
  • Aðlögunarhæfni og hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu hratt og vel
  • Vilji og geta til að vinna að fjölbreyttum lagalegum viðfangsefnum
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
  • Framúrskarandi hæfni og lipurð í samskiptum og teymisstarfi

Starfsstöð er í Hafnarfirði.

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2026.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Eyþóra Kristín Geirsdóttir forstöðumaður í gegnum netfang eythora.geirsdottir@isavia.is

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Isavia

About Isavia

We connect the world through Iceland ✈️

Isavia has the important role of handling the operation and development of infrastructure that lays the foundation for Iceland’s air transport, connections with the outside world and flights between continents.

Keflavik Airport is the largest gateway into Iceland. It is one of the most important single infrastructures of the tourism industry and plays an important role in creating a good quality of life and prosperity in Iceland.

To meet that responsibility, we have a united team and strong employees, who work together and with others in a constructive way.

Industry
Aviation & Aerospace
Company Size
201-500 employees
Headquarters
Hafnarfjörður, IS
Year Founded
2010
Website
isavia.is
Social Media