Hagvangur

Leiðtogi málm- og véltæknigreina – Iðan fræðslusetur

Hagvangur  •  Onsite  •  3 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Vilt þú ‏efla hæfni starfsfólks í málm- og véltæknigreinum og vera hluti af leiðandi fræðslusamfélagi í íslenskum iðnaði?

Iðan fræðslusetur leitar að öflugum og framsæknum leiðtoga til að leiða fræðslu og þjónustu Iðunnar í málm- og véltæknigreinum. Leiðtogi hefur frumkvæði að eflingu og þróun fræðslu fyrir málm- og véltæknigreinar í samræmi við þarfir iðnaðarins. Hann annast þarfagreiningu og skipulagningu á fræðslu og ber ábyrgð á birtingu námskeiðslýsinga á vef.

Leiðtogi málm- og véltæknigreina vinnur náið með deildarstjóra deildarinnar Þróun þekkingar ásamt því að starfa með leiðtogum annarra iðngreina og öðru starfsfólki Iðunnar. Hann á einnig í samstarfi við leiðbeinendur og ýmsa hag- og samstarfsaðila.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þarfagreining og skipulagning á fræðslustarfi fyrir málm- og véltæknigreinar
  • Þróa leiðir til fyrirtækjafræðslu fyrir málm- og véltæknigreinar
  • Samstarf við lykilfólk í málm- og véltæknigreinum og uppbygging tengslanets
  • Fyrirtækjaheimsóknir og eftirfylgni verkefna
  • Samskipti við leiðbeinendur og aðra samstarfsaðila
  • Þátttaka í viðburðum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun og starfsreynsla sem nýtist í starfi
  • Góð þekking á málm- og véltæknigreinum og starfsumhverfi þeirra
  • Brennandi áhugi á fræðslu og þróun málm- og véltæknigreina
  • Frumkvæði, leiðtogahæfni, framsækni og metnaður til að þróa og efla fræðslustarf
  • Þjónustulund og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
  • Góð skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
  • Menntun í kennslufræði og/eða reynsla af kennslu er kostur

Iðan er leiðandi fræðslusetur og þjónustar bílgreinar, bygginga- og mannvirkjagreinar, málm- og véltæknigreinar, matvæla- og veitingagreinar og prent- og miðlunargreinar um land allt. Fræðsluframboðið er fjölbreytt og í stöðugri þróun, en tilgangur Iðunnar er að efla hæfni starfsfólks í iðngreinum með því að vera leiðandi í sí- og endurmenntun í íslenskum iðnaði. Hjá Iðunni starfar öflugur hópur fagfólks sem vinnur saman að því að efla hæfni, gæði og framþróun í íslenskum iðnaði.

Við bjóðum uppá fjölbreytt verkefni, gott starfsumhverfi og tækifæri til að læra, þróast og hafa áhrif á hvernig fræðslu og þekkingu er miðlað.

Nánari uppl‎‎ýsingar

Þórdís Sif Arnarsdóttir - thordis@hagvangur.is

Hagvangur

About Hagvangur

Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem stofnað var árið 1971 og býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum.

Hagvangur þjónustar árlega hundruði viðskiptavina við allt sem snýr að ráðningum og mannauðsráðgjöf. Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi og höfum við áralanga þekkingu og reynslu af atvinnulífinu. Það ásamt breiðu tengslaneti og góðu orðspori eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1971
Social Media