Akureyrarbær

Leikskólinn Tröllaborgir: Starfsfólk í leikskóla

Akureyrarbær  •  Onsite  •  4 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við leikskólann Tröllaborgir eru lausar til umsóknar tímabundnar stöður starfsmanns í leikskóla. Ráðningartími er til loka júní 2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Um er að ræða 80-100% stöður. Sé starfshlutfall minna en 100% felur starfið í sér að einhverja daga í viku verði viðvera til klukkan 16:00, þó aðrir dagar verði styttri. Æskileg starfsbyrjun er samkomulagi.

Lífsleikni í leikskóla eru áherslur Tröllaborga og byggir sú hugmyndafræði á kenningum ýmissa fræðimanna sem snúa að mannrækt og siðferðilegu gildismati í samfélagi manna og þeirri trú að efla og styrkja hið góða í hverjum einstaklingi bæði börnum og fullorðnum. Lögð er áhersla á að túlka lífsleiknina sem hugsjón sem þurfi að flæða yfir allt starf frekar en sem námsgrein innan skólans. Einnig er lögð áhersla á læsi og jóga.

Einkunnarorð skólans eru „Hugur- hjarta - hönd“.

Skólinn hefur tvær starfsstöðvar; að Tröllagili 29 og í Árholti Háhlíð 1

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://trollaborgir.is

Helstu verkefni:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Taka þátt í faglegu starfi skólans undir stjórn deildarstjóra og eða skólastjóra.
  • Taka þátt í mati á starfsemi leikskólans undir stjórn deildarstjóra og eða skólastjóra.
  • Vinnur í nánu sambandi við foreldra/forráðamenn barnanna. Sitja fundi sem haldnir eru á vegum leikskólans.

Grunnkröfur:

  • Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum og jákvæðum einstaklingum.
  • Mikilvægt er að þeir eigi auðvelt með mannleg samskipti og sé tilbúnir til að takast á við skemmtilegt og krefjandi starf með börnum.
  • Mikilvægt er að þeir geti verið sveigjanlegir í starfi og tilbúnir að ganga ýmis störf.
  • Reynsla með börnum er kostur.
  • Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli er nauðsynlegt.
  • Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af starfi í leikskóla eða með börnum.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Starfsmaður í leikskóla starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum, mannauðs- og skólastefnu Akureyrarbæjar.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar-Iðju.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Egilsdóttir skólastjóri í síma 469 4700, netfang: annaegils@akmennt.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is

Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða á Amtsbókasafninu og í þjónustuanddyri Ráðhússins

Umsóknarfrestur er til og með 9. júní 2026.

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown