Akureyrarbær

Leikskólinn Tröllaborgir: Aðstoðarskólastjóri

Akureyrarbær  •  Onsite  •  11 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Leikskólinn Tröllaborgir óskar eftir að ráða aðstoðarskólastjóra í 100% ótímabundna stöðu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 4. ágúst 2026 eða samkvæmt samkomulagi.

Í Tröllaborgum leggjum við áherslu á Lífsleikni í leikskóla og byggir sú hugmyndafræði á kenningum ýmissa fræðimanna sem snúa að mannrækt og siðferðilegu gildismati í samfélagi manna og þeirri trú að efla og styrkja hið góða í hverjum einstaklingi bæði börnum og fullorðnum. Lögð er áhersla á að túlka lífsleiknina sem hugsjón sem þurfi að flæða yfir allt starf frekar en sem námsgrein innan skólans.

Einkunnarorð skólans eru „ Hugur- hjarta - hönd“.

Skólinn hefur tvær starfsstöðvar; að Tröllagili 29 og í Árholti Háhlíð 1

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://trollaborgir.karellen.is/

Starfssvið:

Aðstoðarleikskólastjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum, mannauðs- og menntastefnu Akureyrarbæjar sem og Réttindaskóla UNICEF, þar sem mannréttindi barna eru leiðarljós í öllu starfi. Næsti yfirmaður aðstoðarskólastjóra er skólastjóri.

Helstu verkefni eru:

  • Vinnur náið með skólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á skipulagningu, rekstri, starfsmannamálum og faglegu starfi skólans.
  • Er staðgengill í fjarveru skólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans.
  • Vinnur að uppeldi og menntun nemenda og starfar að hluta til inni á deildum.
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn nemenda.
  • Sinnir að öðru leyti þeim verkefnum er varðar stjórnun skólans sem yfirmaður felur honum.
  • Fylgist með ásamt skólastjóra að leikskólinn sé búinn nauðsynlegum uppeldis-og kennslugögnum.

Menntunar- og/eða hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Viðbótarmenntun á sviði menntunarfræða og/eða stjórnunar er kostur.
  • Reynsla af stjórnun og leikskólastarfi er æskileg.
  • Reynsla og áhugi af faglegri forystu og leiðsögn á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi.
  • Farsæl reynsla af mannauðsmálum kostur og færni til eflingar mannauðs.
  • Jákvæðni og sjálfstæði.
  • Samstarfsvilji og framúrskarandi hæfni og lipurð í samskiptum.
  • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Góð enskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsókn skal fylgja greinargerð um reynslu, störf og helstu verkefni umsækjanda, auk þess sem gerð er grein fyrir sýn hans á faglega forystu og hvernig hann hyggst stuðla að góðum starfsanda, samstarfi og þróun skólastarfs.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags stjórnenda leikskóla hjá Kennarasambandi Íslands.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Egilsdóttir skólastjóri í síma 469-4700, netfang annaegils@akmennt.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2026

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown