Akureyrarbær

Leikskólinn Tröllaborgir: Aðstoðarmatráður

Akureyrarbær  •  Onsite  •  3 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Leikskólinn Tröllaborgir óskar eftir að ráða aðstoðarmatráð til starfa. Um er að ræða 87,5% ótímabundið starf með vinnutímann frá kl. 8:30 til 15:30. Æskileg starfsbyrjun væri í byrjun ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.

Lífsleikni í leikskóla eru áherslur Tröllaborga og byggir sú hugmyndafræði á kenningum ýmissa fræðimanna sem snúa að mannrækt og siðferðilegu gildismati í samfélagi manna og þeirri trú að efla og styrkja hið góða í hverjum einstaklingi bæði börnum og fullorðnum. Lögð er áhersla á að túlka lífsleiknina sem hugsjón sem þurfi að flæða yfir allt starf frekar en sem námsgrein innan skólans. Einnig er lögð áhersla á læsi og jóga.

Einkunnarorð skólans eru „ Hugur- hjarta - hönd“.

Skólinn hefur tvær starfsstöðvar; að Tröllagili 29 og í Árholti Háhlíð 1.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://trollaborgir.is

Helstu verkefni:

  • Aðstoðar matráð við gerð og framreiðslu matar fyrir nemendur og starfsfólk skv. skilgreindu dagsskipulagi.
  • Annast frágang og dagleg þrif í eldhúsi samkvæmt þrifaáætlun.
  • Sér um uppvask.
  • Sér um þvotta innan leikskólans.
  • Gengur frá borðbúnaði eftir máltíðir.
  • Aðstoðar í þeim verkefnum sem til falla í eldhúsi, s.s. að færa upp matinn, sjá um meðlæti, setja á vagna, tekur fullan þátt í matseld eftir þörfum o.þ.h.
  • Sinnir öðrum þeim verkefnum sem yfirmaður felur honum og falla undir starfssvið hans.

Hæfniskröfur:

  • Þekking á gerð og framreiðslu matar.
  • Almenn tölvuþekking er nauðsynleg.
  • Skipulag, framtakssemi og dugnaður.
  • Stundvísi, reglusemi og færni í samskiptum.
  • Kunnátta í skyndihjálp.
  • Snyrtimennska.
  • Góð íslensku- og/eða enskukunnátta er skilyrði.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda (ferilskrá) og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á hæfni hans í starfið.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar-Iðju.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Egilsdóttir skólastjóri í síma 469-4707, netfang: annaegils@akmennt.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2026.

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown